Ægir - 01.07.2002, Page 55
53
Í S L E N S K A S J Á V A R Ú T V E G S S Ý N I N G I N - A U K A B L A Ð Æ G I S
beint saman og ef fleiri tækja er þörf, er á
einfaldan máta hægt að nota „Ethernet
hub“ (laust sendibox), samskonar og
notað er við tölvukerfi og myndast þá
innbyrðis tölvunet.
Dýptarmæli 1 kW er hægt er að
tengja við öll tækin eða beint í „Ethernet
hub.“ 12 rása GPS loftnet er hægt að
tengja við öll tækin.
TELchart, þrívíddar
fiskveiði- og siglingatölva
Fyrir tveimur árum hóf Brimrún sölu á
TELchart þrívíddar fiskveiði- og siglinga-
tölvu (plotter) frá Furuno í Noregi. Kerfið
er í boði í þremur mismunandi útfærslum
fyrir mismunandi stærðir skipa. Í öllum
útfærslunum er í boði þrívídd (3D) og
upphleypt mynd (2D) með gagnasöfnun
á dýpisupplýsingum. Notendur hafa haft
á orði að helstu kostir TELchart séu
vinnsluhraði í gagnagrunnum, úrvinnsla
sjókortanna og það hversu einfalt og
fljótlegt er að læra á kerfið. Á sýningunni
verður frumsýnd ný útgáfa af TELchart
með fjölmörgum nýjungum, þar á meðal
nýjum kortum frá C-map.
Starfsmenn Haftækni á Akureyri.
Dýptarmælir með „frjálsar tíðnir.“
Fyrir 2 árum kom frá Furuno dýptar-
mælirinn FCV-1200. Þessi mælir markar
tímamót í fiskileitartækni, þar sem hann
er „frjáls á tíðnum“, þ.e. notandinn getur
valið hvaða tíðnir sem er á tíðnisviðinu
15-220 kHz, með einföldum stillingum.
Ekki þarf að kalla til tæknimann til að
skipta um bretti aða íhluti. Mælirinn
gengur með botnstykkjum frá öllum
helstu framleiðendum. Enn í dag er Furu-
no eini framleiðandinn sem býður dýptar-
mæla með þessum eiginleika. FCV-1200
er svo kallaður „black box“ mælir, en þá
er notandanum gefinn kostur á að velja
skjá að eigin vali og sendieiningunni og
takkaborðinu er valinn hentugur staður.
Nýir höfuðlínusónarar
Í ár kynnti Furuno nýja höfuðlínusónara,
þráðlausan höfuðlínusónar, Model TS-
834 og höfuðlínusónar með kapali, Mod-
el TS-331A. Þráðlausa tækið skiptist upp
í PC tölvu, mótakara og þráðlaust höfuð-
línustykki. Í höfuðlínustykkinu er 180°
sónar á 330 kHz og dýptarmælir 120
kHz eða 675 kHz. Lengsti skali á són-
arnum er 150m og á dýptarmælinum eru
þeir 20 eða 150 m. . Í stykkinu eru líka
hita-, dýpis- og hallanemar. Þetta tæki er
sérstaklega hannað fyrir botntrollsveiðar,
en það má jafnframt nota við
flottrollsveiðar. Mest er hægt að nota 4
aflanema við tækið í einu. Tækið þolir
2000m dýpi og er gert fyrir 3000m send-
ingu upp í skip. Senditíðnina upp í skip er
hægt að velja, 33 eða 40 kHz. Stykkið er
31 kg og stærðin er 85cm x 33cm x
20cm. Hægt að vista upptökur á tölv-
unni.
Á kapaltækinu er sónarinn á 330 kHz
en dýptarmælirinn er á 120 kHz. Lengsti
skali á sónarnum er 250m en 300m á
dýptarmælinum. Tækið skiptist upp í
stjórntæki sem er með innbyggðan mót-
takara, skjá og svo sónarinn sjálfan. Það
eru notaðir sömu aflanemar við þetta
tæki og þráðlausa tækið.
Fleiri „black box“ tæki
Furuno er í auknum mæli að framleiða
tæki í „black box“ útgáfu. Auk FCV-1200
dýptarmælisins eru eftirtalin tæki þessar-
ar gerðar:
FR-2100B, X- eða S-band ratsjár
með 12 - 30 kW sendiorku, 40 skipa
ARPA og radarplotter.
FSV-24B hringsónar fyrir stærri skip
með sjálfvirkri alhliða veltustýringu, 2
sneiðmyndum samtímis (vertical), þröng-
um geisla, sjálfvirkum truflanadeyfum og
nýrri hönnun á botnstykki.
CH-250B sónar fyrir minni skip og
báta, með 1200 W sendiorku, hringmynd
og sneiðmynd (vertical), sjálfvirkri alhliða
veltustýringu. Tvær tíðnir eru í boði, 60
kHz eða 150 kHz.
Nýjungar fyrir smábáta
Margar nýjungar hafa komið frá Furuno
fyrir minni skip og báta. FCV-1100L er
nýr tveggja tíðna dýparmælir með 10,4
tommu LCD flatskjá og frjálsum tíðnum
(15-220 kHz) sem gengur með botns-
tykkjum frá öllum helstu framleiðendum
M-1712 er nýr 24 sjómílna radar með
2,2 kW sendiorku og 6,5 LCD skjá.
NavNet serían er það allra nýjasta frá
Furuno fyrir minni skip og báta, öll tækin í
brúnni eru samtengd á einfaldan hátt,
hægt er að samtengja tvö NavNet tæki