Ægir - 01.07.2002, Blaðsíða 84
82
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Ískerfi
Skútahrauni 2
220 Hafnarfjörður
Sími: 555 6400
Fax: 555 6401
Þjónustusími: 864 4787
Veffang: www.iskerfi.is
Haraldur Edvard Jónsson sölustjóri og Páll Þ. Pálsson, útgerðartæknir og sölustjóri.
Góður árangur við notkun ís-
þykknis í Skotlandi og á Írlandi
Ískerfi hf. í Hafnarfirði hafa selt ís-
þykknisvélar í fjóra báta í Skotlandi
og á Írlandi á undanförnum mánuð-
um. Vélarnar hafa verið seldar í
báta sem veiða uppsjávarfisk svo
sem makríl og síld og er um mjög
mismunandi báta að ræða, að sögn
Páls Pálssonar og Haraldar E.
Jónssonar, sölustjóra hjá Ískerfum.
Fyrsti báturinn til þess að taka í notkun
ísþykknisvélar samhliða notkun RSW
kerfis er Accord PD-90 frá Peterhead í
Skotlandi. Vélin um borð í Accord er sett
í til þess að auka kælihraða RSW kerfis-
ins og er ísþykknið notað til þess að
byggja upp lager í lestinni af „kæliorku“.
Ísþykknið flýtir kælingunni og báturinn
skilar betri afla vegna þess að RSW kerf-
ið þarf að hringrása mun minni sjó og þar
með „tætist“ fiskurinn minna. Það sama
gildir um síldina eins og annan fisk, fyrsti
klukkutíminn skiptir miklu máli fyrir gæði
aflans.
Bátarnir á Írlandi sem hafa verið að
kaupa vélar á undanförnum mánuðum
eru minni (tiltölulega litlir). Fyrsti báturinn
til þess að taka í notkun 2 B-105 ís-
þykknisvélar var Fiona K II. frá Dingle.
Fiona var lengd í sumar á Spáni og voru
vélarnar settar niður í leiðinni. Lestarnar í
Fionu eru 120 tonn. Hafa vélarnar reynst
það vel að þrír bátar í viðbót af sama
svæði hafa keypt vélar og er einn þeirra
þegar kominn með vél um borð. Sami
aðili er að láta smíða nýjan bát á Spáni
og hefur pantað vélar um borð í hann.
Farið var í sölu- og kynningarferð um
Færeyjar, Shetlandseyjar, Skotland, Eng-
land og Írland í sumar, að sögn Páls og
Haraldar. „Samhliða sölumennskunni
ræstum við vélarnar í þremur bátum og
kenndum áhöfnum þeirra hvernig standa á
að verki til þess að sem bestur árangur
náist. Við höfum talsverða reynslu frá Ís-
landi og á undanförnu ári höfum við lært
hvernig best er að standa að notkun ís-
þykknisins. Fyrstu vélarnar sem við settum
í skip fyrir uppsjávarveiðar fóru um borð í
Hörpuna VE fyrir einu ári, en síðan hafa út-
gerðir Ísleifs VE, Bergs VE, Áskels EA og
Beitis NK keypt vélar frá okkur og náð
góðum árangri þar sem notkun er hafin.
Elsta skipið með ísþykknisvélar í uppsjáv-
arfiski var Víkurberg - nú Sunnutindur.“
Fyrsti báturinn til þess að taka í notkun ísþykknivélar frá Ískerfum samhliða notkun RSW-kerfis var
Accord PD-90 frá Peterhead í Skotlandi.