Ægir - 01.07.2002, Síða 112
110
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Viðskiptaþjónusta
utanríkisráðuneytisins, VUR
Rauðarárstíg 25
150 Reykjavík
Sími: 545 9900
Fax: 562 2373
Veffang: www.vur.is
Benedikt Höskuldsson, forstöðumaður VUR, viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins.
Aðstoð við útrás
á erlenda markaði
Viðskiptafulltrúar VUR starfa í sjö af
17 sendiskrifstofum Íslands en að
auki veitir VUR íslenskum fyrirtækj-
um aðgang að yfir 220 ræðismönn-
um í meira en 60 löndum.
„Aðstoð VUR gengur út á að hjálpa
íslenskum fyrirtækjum við að koma sér á
framfæri á erlendum mörkuðum. Okkar
viðskiptafulltrúar kanna viðkomandi
markað, setja saman lista yfir hugsanlega
viðskiptavini, skipuleggja fundi og sitja
jafnvel fundi með fyrirtækjunum eða fara
á þá sem fulltrúar þeirra. Í stuttu máli má
segja að okkar þjónusta felist í því að
gefa íslenskum fyrirtækjum tækifæri til að
nýta sér víðtækt net utanríkisþjónustunn-
ar, sendiráð og ræðisskrifstofur, til hags-
bóta fyrir íslenskt atvinnulíf,“ sagði Bene-
dikt Höskuldsson, forstöðumaður VUR,
viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins.
VUR veitir sérhæfða markaðsráðgjöf í
sjö sendiráðum Íslands, þ.e. í París,
Berlín, Lundúnum, New York, Peking,
Moskvu og Tókíó. Í framtíðinni er stefnt
að því að hún verði veitt í öllum tvíhliða
sendiráðum Íslands. Starfsmenn þessara
sendiráða taka að sér að leysa einstök
verkefni og veita sérhæfða markaðsþjón-
ustu eða markaðsráðgjöf.
„Okkar markmið er að efla viðskipta-
þekkingu innan utanríkisþjónustunnar
eftir megni og virkja starfsmenn hennar til
þátttöku í íslenskri útrás á erlendum
mörkuðum. Til að þetta megi takast
þurfa okkar menn að hafa haldgóða
þekkingu á staðháttum á viðkomandi
svæði. Sú þekking ásamt þeirri stöðu
sem við höfum sem starfsmenn utanrík-
isþjónustunnar, opnar margar dyr, hvar
sem er í heiminum. Á hinn bóginn er það
svo auðvitað verkefni fyrirtækjanna sjálfra
að leggja upp verkefnin, þróa viðskipta-
hugmyndir og loka sölu þegar vel tekst
til,“ sagði Benedikt ennfremur.
VUR hefur frá upphafi staðið að viða-
mikilli fræðslu og kynningu á Íslandi og
íslenskum fyrirtækjum í samstarfi við er-
lenda aðila með fyrirlestrum, ráðstefnum
og sýningum. Þannig voru t.d. haldnir
Ferskfiskdagar í París og Bremerhafen
og Íslandskynning í Japan í tengslum við
opnun sendiráðs í Tókíó. VUR er í sam-
starfi við Útflutningsráð, Nýsköpunarsjóð,
Verslunarráð, Félag íslenskra stórkaup-
manna, Iðntæknistofnun, Ferðamálaráð,
Byggðastofnun og atvinnumálafulltrúana
úti á landi. Benedikt segir að samstarfið
við þá skipti miklu máli. „Við viljum gjarn-
an að fyrirtæki úti á landsbyggðinni skynji
að þau eiga vísa aðstoð erlendis ef þau
hafa góðar hugmyndir og vilja hrinda
þeim í framkvæmd,“ segir hann. „Við
höfum orðið vör við mikla ánægju hjá
þeim fyrirtækjum sem VUR hefur unnið
fyrir. Þau eru ánægð með að eiga sér
liðsmenn í fjarlægu umhverfi og sá skiln-
ingur sem fyrirtækin hafa mætt við að fá
erindi sín afgreidd fljótt, faglega og í full-
um trúnaði, virðist koma þeim á óvart.“
Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytis-
ins, VUR, er með bás á sjávarútvegssýn-
ingunni nr. E61. Viðskiptafulltrúar sendi-
ráðanna koma í heimsókn af þessu tilefni
og verða til viðtals á sjávarútvegssýning-
unni og í utanríkisráðuneytinu.
Frekari upplýsingar um VUR fást á
slóðinni www.vur.is. Ennfremur má hafa
samband við ráðuneytið í síma 545 9900
eða beint við viðkomandi sendifulltrúa
erlendis.