Ægir - 01.07.2002, Síða 133
Útgáfa Athygli fyrir sjávarútveginn
131
Í S L E N S K A S J Á V A R Ú T V E G S S Ý N I N G I N - A U K A B L A Ð Æ G I S
Ægir er alhliða tímarit um sjávarútvegsmál og kemur
það út 11 sinnum á ári. Blaðið hefur mikla sérstöðu á
markaði og býr að langri sögu en það hefur komið út
í hartnær 100 ár. Margir sérfræðingar skrifa
reglulega greinar í Ægi en leitast er við að hafa efni
blaðsins við allra hæfi. Kaupendur eru sjómenn,
útvegsmenn og fiskvinnslufólk um land allt. Ritstjóri
er Jóhann Ólafur Halldórsson, johann@athygli.is.www.skipaskra.is
Á vefslóðinni www.skipaskra.is heldur
Athygli út upplýsingavef um íslensk skip
og hafnir. Þar er hin prentaða skipa- og
hafnaskrá lögð til grundvallar en nýjum
upplýsingum bætt inn um leið og þær
berast, s.s. um breytingar á
skipastólnum, úthlutaðan kvóta,
breytingar á hafnaraðstöðu o.fl. Á
vefnum er að finna myndir af öllum
togurum og fiskiskipum eftir ýmsa
ljósmyndara og loftmyndir af öllum
íslenskum höfnum eftir Mats Wibe Lund.
Sjómannaalm-
anakið er nauð-
synlegt rit öllum
sæfarendum og
öðru áhugafólki
um sjávarútveg.
Bókin hefur kom-
ið samfellt út frá
árinu 1925, lengst
af gefin út af Fiski-
félagi Íslands en af
Athygli frá árinu
2000. Bókin er full af fróð-
leik og leiðbeiningum og er efnið unnið í samráði við fjölda
sérfræðinga um íslenskan sjávarútveg. Ritstjóri er Embla Eir
Oddsdóttir, embla@athygli.is. Sölustjóri auglýsinga er Inga
Ágústsdóttir. inga@athygli.is
Íslensk skipa- og hafnaskrá er upplýsingarit um íslenska
skipastólinn og allar hafnir strandlengjunnar. Í skipaskránni
má m.a. fá upplýsingar um úthlutað aflamark skipa,
smíðastað, útgerð, fyrri eigendur, tækni skipsins o.fl. Í
bókinni eru um 1000 myndir af íslenskum skipum. Með
bókinni fylgir geisladiskur með efni hennar á tölvutæku
formi. Ritstjóri bókarinnar er Jón Sigurðsson vélstjóri,
jon@athygli.is.
Sjómannaalmanakið og Skipaskráin 2003
Tímaritið Ægir
Óskar Þór Halldórsson og
Jóhann Ólafur Halldórsson
skrifa meginefni Ægis. Þeir
starfa á Akureyrarskrifstofu
Athygli.
Inga Ágústsdóttir. Jón Sigurðsson. Embla Oddsdóttir.