Tímarit Máls og menningar - 01.12.1941, Blaðsíða 31
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
237
6. Murtan í Þingvallavatni hefur einnig verið tekin
til meðferðar og vísa ég þar til greinar eftir mig í Náttúru-
fræðingnum.1)
7. Loks iiefur verið ákvarðaður aldur á laxi, sem hér
segir:
Árið 1937 100
— 1938 518
— 1939 723
— 1940 1001, eða
samtals 2342 síðan Fiskideildin
tók til starfa. Þó eru ekki taldar rannsóknir ársins 1941.
Ein ritgerð hefur þegar komið á prent um árangur lax-
rannsóknanna.2)
En það skortir því niiður mikið á það, að okkur sé, eins
og nú standa sakir, kleift að gera þessar rannsóknir í
jafnstórum stíl og nauðsyn her til, eða sýna þeim þá
alúð, sem þær verðskulda, og ber þar til, að við höfum
þvi miður ekki nægilegt fé til þeirra þarfa. Það væri nauð-
synlegt, að einn vísindamaður, sem væri sérfræðingur i
vatnarannsóknum, gæti gefið sig óskiptan að þeim allan
ársins liring. Ég býst við, að hægt væri að koma þessu
til leiðar með því að nota þá sérstöðu, sem við Islending-
ar höfum, einmitt þegar um það er að ræða að leysa þessi
vandamál. Þessi sérstaða er nefnilega i þvi fólgin, að við
höfum á einum stað á landinu mann á föstum launum
hjá ríkinu, og það einmitt þar, sem hægt væri að gera
vatnarannsóknir fyrir alla landsmenn. Ég á hér við Þing-
velli og umsjónarmann þeirra. Hvað væri nú eðlilegra en
það, að umsjónarmaðurinn á Þingvöllum væri náttúru-
fræðingur, með sérmenntun á sviði vatnarannsóknanna,
og gæti um leið og hann stæði vörð um helgasta reit þjóð-
arinnar unnið öllum landsmönnum gagn með kerfis-
1) Nátt. 1939, bls. 1.
2) Á. F.: Laxrannsóknir. Rit Fiskideildar 1940, nr. 2.