Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1961, Side 77
NÝIR ÁVEXTIR OG ALDIN RÓT valdsson póstur á Kálfafelli í Fljótshverfi er Þorvaldi samferða yfir Skeiðarársand, og mun Stefán hafa verið í póstferð. Segir nú ekki af för þeirra, fyrr en þeir koma að Skeiðará. Þá var Skeiðará yfrið smá vexti og ekki nema svipur hjá sjón af því foráttu- fljóti, sem Þórbergur reið eitt sinn ásamt frú og frægt er í sögum. Þorvaldur var ekki með öllu ókunnur Skeiðará frá æskuárum, honum leizt hún fær, þar sem að var komið, og vildi engar vöflur á hafa að leggja í hana. En Stefán réð ferðum, beindi hesti sínum niður með ánni og sagði: „Hún er betri neðar“ og ekkert annað. Ríða þeir nú um stund niður sandinn. Þorvaldur hreyfir því öðru hvoru, að hér sé gott vað og hér sé áin reið. En Stefán svarar alltaf hinu sama: „Hún er betri neðar“, og engu öðru. Loks kemur að því, að Stefán lætur hest sinn stinga við fótum og segir: „Við fáum hana ekki betri“. Segir svo ekki meira af þeirra ferð. Þeir fara yfir ána hrægrunna, og sögunni er lokið. Þetta þykir ykkur ekki rismikil saga, ykkur þykir hún meira að segja alveg sér- lega rislág og enn rislægri fyrir það, að við hana kemur jafnaðsópsmikil persóna og sjálf Skeiðará, sem heitir Hún á máli Oræf- inga. En Þorvaldi var þetta ógleymanlegt atvik, og sagan varð okkur heimspekilegt umræðuefni. Það var þetta undarlega uppá- tæki póstsins að vilja ekki fara yfir ána, þar sem fyrst var að komið, fyrst því var ekki til að dreifa, að þar væri hún ekki sæmileg yfirferðar. Við Þorvaldur komumst að þeirri niðurstöðu, að hér hefði Stefán fylgt lífsreglu þeirra manna, sem dæmdir væru til þess öðrum fremur að eiga sam- skipti við Skeiðará í öllum hennar marg- breytilegu myndum. Þeir spyrja ógjaman, hvort Hún muni fær eða ekki fær. Þegar á þarf að halda, þá verður Hún að vera fær. Meginlífsreglan er að athuga, hvar Hún er bezt, og fara Hana, þar sem Hún er bezt, — það er sú heilaga regla, sem aldrei má brjóta, hversu meðfærileg sem Hún kann að vera, þar sem Hún er næstbezt eða þarnæst- bezt. Og við Þorvaldur komumst að þeirri niðurstöðu, að hollustan við þessa lífsreglu ætti sjálfsagt verulegan hlut í því, hve bindindissamir Skaftfellingar og aðrir hafa verið á að dmkkna í þessu voðafljóti, þótt um allar aldir hafi menn iðkað það að farast í öðrum stórfljótum og auk þess í meinlausustu bæjarlækjum og fjallalindum, mógröfum og rjómasléttum heiðavötnum. Hér af skulum við nema sannindi um hin margbreytilegu viðfangsefni, er við veljum okkur eða örlögin úthluta okkur á vegferð lífsins. Við eigum ekki aðeins að leita þess, sem gott er, heldur þess sem bezt er í hverj- um hlut. Sagnfræðingurinn á ekki að láta sér nægja að vita nokkurn veginn, hvað satt er og frambærilegt út frá þeirri söguþekk- ingu, sem handhægust er til samanburðar. Hann leggur á sig erfiði að leita, hvort ann- að megi sannara reynast. Ari fróði gerði sér þess fulla grein, að þekkingu hans gat verið ábðtavant eins og öllu öðm hér í þess- um heimi, og þess vegna bað hann þess síð- astra orða að láta sín orð fyrir ættemis- stapa, ef annað kæmi í leitirnar, er sannara reyndist. Það bezta og sannasta er takmark- ið í hverjum hlut. V Þessari meginreglu fylgir Þórbergur Þórðarson út í æsar í ritun sinni. Fræg er þjóðsagan um frágang handrita hans. Það eru handrit í orðsins fyllstu merkingu, þar kemur engin ritvél nærri til að má persónu- leika hans af stafagerð og niðurskipan orða á pappírinn. Fegurð rithandarinnar er þjóðkunn og senn sjáanleg hverju manns- barni á Islandi ásamt hreyfingum handar og fingrastöðu á pennastönginni. Svo er að þakka kvikmyndaranum Ósvaldi Knudsen. Það fer ekki milli mála, að mörg eru þau 315
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.