Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 10

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 10
Tímarit Máls og menningar og orðið allt í senn ríkur, valdamikill og frægur. Með dvínandi stéttarvitund og stéttarsamstöðu hefur verkalýðurinn tileinkað sér þennan boðskap og beint honum gegn sjálfum sér. Það er nánast talinn aumingjaskapur að sitja eftir í stéttinni, koma sér ekki áfram, vinna sig ekki upp. Hetjur stéttarinnar eru þau sem tekist hefur að yfirgefa hana. Meðal þeirra er verkalýðsforystan, fólk sem eitt sinn vann launavinnu og var þarafleiðandi svosem ekki neitt neitt en er nú hætt því fyrir löngu og orðið, reyndar ekki ríkt, en bæði frægt og valdamikið, menn með mönnum, þ. e. menn meðal höfðingjanna. Þarna hafa hugsandi verkalýðsforingjar fundið sinn annan snertiflöt við Albert Guðmundsson. Þeir eru „self-made“ einsog hann. Fyrirgreiðslupólitík og góðgerðastarfsemi Alberts og hans líka hvíla á gamalkunnum hugmyndagrunni: Við lifum í gölluðum heimi þar sem hinir veiku eiga ævinlega í vök að verjast, en af því heimurinn er óbreytanlegur í höfuðatriðum og óhugsandi að hinir veiku geti hætt að vera veikir, þá verður þessu ástandi ekki breytt, það verður aðeins dregið úr annmörkum þess með því að hinir sterku komi hinum veiku til hjálpar, hinir ríku séu góðir við hina fátæku, hinir valdamiklu greiði götu þeirra valdalausu, yfirmenn séu miskunn- samir við undirmenn, stjórnendur við hina stýrðu o. s. frv.; annarsvegar eru smælingjar, hinsvegar þeir sem hafa tækifæri til að vera góðir við smælingjana. í praxís verður þetta að hátterni sem við getum kallað smælingjapólitík. Albert er mótsagnakenndur smælingjapólitíkus. Hann er vinsamlegur smælingjunum sem einstaklingum og væntanlegum kjósendum sínum; hver og einn er skjólstæðingur hans. En hann er fjandsamlegur þeim sem heild; þeir skulu halda áfram að vera smælingjar, þeir skulu arðrændir og kúgaðir og alþingi á að skerða hjá þeim verkfallsréttinn. Þessa mótsögn reynir hann hvorki að leysa né afsaka. Hún er sjálfsagður hluti af tvískinnungi borgaralegrar siðfræði. I smælingjapólitíkinni hafa hugsandi verkalýðsforingjar trúlega fundið sinn höfuðsnertiflöt við Albert Guðmundsson. Þeir eru ekki aðeins fyrrverandi smælingjar sem hafa komið sér í þá aðstöðu að geta verið góðir við smælingjana einsog hann, þeir aðhyllast hugmyndir hans í þessum efnum og keppast við að lifa í samræmi við þær. Hér á ég ekki aðeins við þá fyrirgreiðslupólitík sem margir verkalýðsforkólfar stunda í samtökum sínum þar sem seta í stjórnum og nefndum ásamt viðeigandi samböndum í ótal áttir er notuð til að gera Jóni og Gunnu persónulega greiða, redda þeim um hitt og þetta, oftast sjálfsögð réttindi. Ég á fyrst og fremst við þá pólitísku afstöðu sem verkalýðsskrifræðið hefur almennt til stéttarinnar sem heildar. 264
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.