Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Síða 74

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Síða 74
Tímarit Máls og menningar ótæmandi, en mig grunar að það þurfi ekki annað en inflúensufaraldur til að stráfella þau. Endurreisnarstarfið mætir óteljandi erfiðleikum, sauðþráum embættis- mönnum, „pólitískri“ afskiptasemi o. s. frv. o. s. frv., svo maðurgæti spurt hvað hafi raunverulega breyst. Ríkisstjórnin er ekki steypt í eina mynd eins og margir vilja vera láta, hún er hrærigrautur námsmanna, kennara og annarra eftirlifenda hinnar gömlu borgarastéttar, fólks sem hefur numið einhverja iðn eða mennt, og yfir þeim ríkja menn sem hafa hlaupist undan merkjum fyrri valdhafa, fengið stutta endurhæfingu í Hanoi og láta nú hendur standa fram úr ermum. Eftir ferðalagið með okkur var það mat Jims Howard að meira en 90% af hjálparfé Oxfan hafi komist á áfangastað. Howard er sennilega einhver reyndasti og virtasti „neyðarhjálparstjóri“ sem nú er uppi, margreyndur m. a. frá Indlandi, Bangladesh og Biafra og gerólíkur ýmsum öðrum hjálparstofnanamönnum í Phnom Penh, þeim sem hafa búið um sig í hinu gamla Hotel Royale, asískri undrahöll með uppstoppuðum krókódílum i anddyrinu og andrúmslofti sem minnir á einangrað klaustur. Howard sér vandamálin með augum fólksins, ekki út frá einhverjum Messíasarkomplex eða til að upphefja sjálfan sig. Hann segir: Það væri leitt ef fólkið sem hefur lagt fram fé til þessarar söfnunar vissi ekki hvað mikið íbúar Kampútsíu eiga þeim að þakka. Sannleikurinn er sá að mestur hluti hefur lent á áfangastað, spilling hér er varla teljandi. Engar af þessum vörum eru seldar á svörtum markaði. Hér er ríkisstjórn sem er einangruð og berst fyrir lífi sínu, og höfuðfjandmenn hennar eru viðurkenndir af Sameinuðu þjóðunum. Við þessar aðstæður finnst mér þeir hafa gert nánast kraftaverk í endurreisnarstarfi. Ótti er það sem þjakar Kampútsíu núna, ekki hungur. Það er ótti sem kemur fram í hverri samræðu og býr í öðru hverju andliti sem maður sér. „Kemur Pol Pot aftur?“ var spurning sem hljómaði í eyrum mér hvað eftir annað. Þrátt fyrir sprengjuregnið fyrir nokkrum árum og óopinberan stuðning vesturlanda við Pol Pot ber lítið á þeirri útlendingahræðslu sem vesturlandamenn gætu vænst hjá þjóð sem hefur orðið að þola svo mikla villimennsku útlendinga. Hefð- bundin andúð Kampútsíumanna gagnvart Víetnömum hefur verið lögð á hilluna til langframa, og ekki ber neitt á því „hatri“ sem þeir á landamærunum láta sér svo tíðrætt um. Víetnamskir hermenn reika um á mörkuðunum óvopnaðir, vel agaðir og virdr. Fólk sem býr inni í Kampútsíu veit vel að þeir einir geta komið í veg fýrir nýja stjórn Rauðra kmera. 328
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.