Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 75

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 75
Annað Indókínastríð Bandaríkjamanna Monorom hótelið þar sem ég bjó í Phnom Penh efndi til „diskó-kvölds“ fyrir skömmu. Konur og börn sátu öðrum megin í salnum, karlar hinum megin. Fólk skemmti sér konunglega þangað til leikin var snælda með hinum ástsæla söngvara Sin Sisamouth, og fólk gekk út að glugganum og grét. Hann hafði verið færður til Battambang, neyddur til að grafa sina eigin gröf og syngja þjóðsöng Rauðra kmera sem er allur um blóð og dauða. Siðan var hann laminn til bana. Það er aðeins ein lest sem er i förum með útsæði frá Phnom Penh til norðvesturs. í bakaleiðinni annan hvern dag er hún eins og mauraþúfa af fólki sem hangir utan á henni hvar sem handfesti er að fá, og jafnvel lestarstjóraklefinn er eins og sardínudós. í næstu ferð eftir að ég fór með henni gerðu Rauðu kmerarnir árás á lestina með eldflaugum og vélbyssum, a. m. k. 150 manns létu lífið. Þegar ég sagði kampútískri vinkonu minni frá þessu varð andlit hennar steinrunnið eins og tilfinningarnar væru múraðar inni. Þetta eru algeng svipbrigði, og fólk sést sjaldan tárfella. Hún hafði verið róttækur náms- maður í Phnom Penh-háskólanum þegar Rauðu kmerarnir héldu þegjandi fylktu liði inn í borgina. „Ég fór með félögum mínum út á götu til að fagna þeim,“ sagði hún. Ari seinna höfðu þeir drepið systur mína sem var barnshafandi, sex bræður mína, móður mína og föður. Rétt fyrir frelsunina vissi ég að þá átti að drepa mig, en ég komst undan inn í skóginn. Þann sama morgun voru tveir litlir drengir sakaðir um að hafa stolið svínafóðri og okkur var safnað saman til að sjá þá hengda. Þeir voru sex eða sjö ára gamlir. Lesendur hafa e. t. v. kynnst slíkum hryllingssögum og mér þykir leitt að þurfa að endurtaka þær. En um leið og blásið er glóðum að öðru Indókínastríðinu þar sem fjölmennasta ríki heims og það öflugasta styðja þá sem sekir eru um slíka glæpi fölna minningarnar næstum jafnótt og ímyndir morðingjanna eru fegr- aðar að nýju. Khieu Samphan, sem hefur tekið við af Pol Pot sem „Forsætis- ráðherra lýðræðisríkisins Kampútsíu“ hefur fengið heimspressuna í heimsókn í aðalstöðvar sinar í skóginum með góðfúslegri hjálp thailenska hersins. Frétta- ritari Times í Bangkok, Neil Kelly, lýsti honum sem „unglegum, þreknum, brosleitum manni“ sem „vildi afmá leifar fortiðarinnar" og sagði að „fram- tíðarstefna ríkisstjórnar sinnar yrði sú að stuðla að frelsi þjóðarinnar til að kjósa hvers konar ríkisstjórn sem hún vildi, hvort sem hún væri kommúnísk, kapí- talísk eða mitt á milli.“ Skyldi engúm flökra við? 329
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.