Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 90

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 90
Tímarit Máls og menningar Rökstuddi ég þetta álit mitt með því, að þótt lögin væru ómannúðleg þá mæltu þau þó svo fyrir að þurfalinginn skyldi flytja fljótustu og beinustu leið. Var þá bent á að lögin gerðu aðeins ráð fyrir flutningi á sjó eða landi. Eg svaraði þvi til, að þegar lögin hefðu verið sett hefði ekki verið gert ráð fyrir flugvélum sem farkosti, en hitt gæti ekki orkað tvímælis að löggjafinn hefði ætlast til að flutningur væri sá skjótasti og beinasti sem kostur væri á og nú væri það flugið. Var nú óskað úrskurðar yfirvaldsins hér að lútandi. Magnús bæjarfógeti kvað þettageta verið álitamál og rétt að athuga það nánar. Ákvað hann síðan að fresta framkvæmd um sinn og sleit fundi. — Nokkrum dögum síðar vildi svo giftusamlega til að góð barnlaus hjón í Hafnarfirði buðu stúlkunni að taka barnið til uppfósturs og þáði hún það. Var þá ástæðan til flutnings úr sögunni því stúlkan gat séð sér einni farborða. Mér er minnisstæð gleði bæjarfógeta, er hann fékk þau tiðindi að vandræði stúlkunnar væru úr sögunni á þennan óvænta hátt. Eg hitti Magnús bæjarfógeta síðast á götu hér i Reykjavík nokkrum dögum fyrir dauða hans. Rætti hann við mig um stund, eins og jafnan var háttur hans er fundum okkar bar saman. Sagði hann þá meðal annars: „Ég man alltaf þegar þér heimtuðuð flugvélina fyrir stúlkuna og barnið, ef þau yrðu flutt sveitarflutn- ingi. Með þessu móti tókst yður að koma í veg fyrir flutninginn. Það var dásamlegt." — Eftir mörg ár yljaði það enn hinum hára heiðursmanni, að tekist hafði að hindra flutninginn, sem vissulega var mest fyrir hans mikilsverðu hjálp. Þá gerðist það eitt sinn að framfærsluyfirvöld í nágrenni Hafnarfjarðar tóku ákvörðun um nauðungarflutning á aldraðri einstæðingskonu, eftir kröfu fram- færslusveitar hennar austur á landi. I örvæntingu sinni flýði konan til Hafnar- fjarðar og leitaði þar athvarfs hjá öldruðum heiðurshjónum sem hún þekkti. En kvöldið áður en skipið fór sem flytja skyldi konuna austur hafðist upp á dvalarstað hennar. Komu fulltrúar dvalarsveitar gömlu konunnar til Hafnar- fjarðar síðla þetta kvöld og leituðu aðstoðar lögreglunnar. Magnús bæjarfógeti var þá í embættiserindum utan bæjar. Sneru menn þessir sér þá til mín sem lögregluþjóns, en ég var á verði þetta kvöld. Fór ég með þeim að dvalarstað konunnar, en þar var hurð lokuð og fólk sjáanlega gengið til náða. Mér var kunnugt um að sjúkleiki var á þessu heimili og mótmælti nú að nokkurt ónæði væri gert þar nema í samráði við lækni heimilisins og urðu sendimenn að fallast á það. Er til læknisins kom þá andmælti hann ákveðið að nokkur aðför yrði gerð að fólkinu um kvöldið. Urðu sendimenn því frá að hverfa að svo komnu. En þeir ákváðu að sækja konuna það snemma morguninn eftir, að þeir kæmu henni til skips í tæka tið. Skyldi Hafnarfjarðarlögreglan setja vörð um dvalarstað 344
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.