Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 113
,,Hverju reiddust goóin?“ krossa. Þar var reykelsi lagt á glóð, „og lagði ilminn eigi síður gegn vindi en forvindis“. Þar fluttu þeir ræður Hjalti Skeggjason og Gissur hviti, „með mikilli snilld og orðfæri", hófu sitt mál með ævintýraríkri ferðasögu um lendur og strendur fjarra staða, báru síðan kærar kveðjur frá konungi Noregs, Ólafi Tryggvasyni, og boðskap hans um kristniviðurtöku. „Um síðir sneru þeir sinni ræðu til mjúkrar áeggjunar við alþýðu, báðu allt fólk með blíðskap og fögrum orðum að snúa á svinn sínu ráði og játa sig undir vilja og þjónustu konungs allra konunga“. Og síðan gáfu þeir íslenskri þjóð það allra glæsilegasta tilboð, sem þeim nokkru sinni hefur að eyrum borist. Þeim er boðið „að öðlast af guði sjálfum eilífa ömbun vendilegs fagnaðar himinríkis dýrðar“. Sem umboðssalar kunngjörðu þeir hátíðlega, að þessi af guði veitta ömbun veittist „að viðtekinni skírn og heilagri trú og haldinni". Að ræðum þessum loknum „gerðist þyss mikill og háreysti, af því að annar maður af öðrum nefndi sér votta og sögðust úr lögum hvorir við aðra kristnir menn og heiðnir“. En mitt í öllum þessum ósköpum hendist allt í einu piltungur inn á sviðið og æpir mikilli raust, að uppi væru jarðeldar sunnan Hengils og rynni hann óðfluga að bæ Þórodds goða „og ógnaði bráðum bruna allri hans eign“. Þá hækkaði heldur brún heiðingjanna, og einn þeirra mælti fyrir allra hönd: „Það er eigi undarlegt, að goðin reiðist slíkum tölum sem nú heyrðum vér fram fluttar fyrir skömmu“. Frá byggð íslands hafði Egill Skallagrímsson ekki verið einn um þá skoðun, að Óðni og hans fylgifiskum væri alvarlega tekinn að bila þróttur til verndar sínum skjólstæðingum. Þeim mátti því vera það mikið fagnaðarefni, ef nú kæmi í ljós, að enn gætu þeir kippst ærlega við, þegar á þá var ráðist með slíkri ósvífni sem hér var raunin á. Þá kemur enn einn fram á sviðið úr mannþyrpingunni. Það mætti segja mér, að sá hafi ekki verið mikill vexti, og það er ekkert víst, að honum hafi legið neitt sérlega hátt rómur. En kunnur var hann meðal þeirra, sem vanið höfðu komur sínar á Þingvöll undanfarin sumur, og nafn hans var einnig þekkt þeim, sem heima höfðu setið. Það er frægt, að margur hafði sóst eftir að hlýða orðum hans, ef vanda bar að höndum. Hann hvarflar augum rólega um velli og hraun og gjár umhverfisins og varpar siðan fram eindæma hlutlausri spurningu í beinu fram- haldi af fullyrðingu um reiði guðanna í eldgosinu, sem ógnaði höfðingjasetrinu í Ölfusi. Hann spyr þess rétt svona, út af hverju guðirnir mundu hafa reiðst, þegar öll þau ósköp gengu á, sem sýndu merki sín á staðnum, þar sem þingheimur stóð. Og í beinu framhaldi af spurningunni leyfir hann sér í allri hógværð að bera fram sitt álit í málinu og mælir á þessa leið: „Voru það eigi 367
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.