Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 136

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 136
Tímarit Máls og menningar föllum með því að leikrit okkar séu leikin. Við lifum og/eða deyjum að geðþótta leikhúsanna. Menn eru að tala um lýðræði, en hvað okkur snertir, þá gildir enn gamla fyrirkomulagið, að vinnuveitandinn rekur fólk að geðþótta. Við stöndum á gamla vinnuaflsmarkaðnum og verðum að biðja um nokkurra vikna vinnu. Lýðræði og höfundar? Því er fljótsvarað: Við höfum engin rétt- indi. Og hvers vegna? Við erum fáir. Félag okkar er valdalaust. Og það notfæra leikhúsin sér. Félag sviðsmanna er bæði stærra og sterkara, og því rétthærra. Nú hefði maður ímyndað sér aðþað vceri leikhúsunum sjálfum fyrir bestu að hafa gott samband við höfunda sínaP Já, það hefði maður haldið, en reyndin er önnur! Þeim finnst að við eigum að vera kátir ef það dettur í þá að taka leikrit okkar til sýningar. Það er fremur undarlegt hér í Svíþjóð, að sænsk leikhús hafa aldrei tekið leikrit eftir mig til sýningar. Ekki fýrr en eftir að eitthvert leikhús utan Skandinavíu hefur sett þau á svið. Samt bý ég hér og er sænskur ríkisborgari. Það hefur aldrei hentað sænskum leikhúsum að taka verk eftir mig til sýningar fyrr en eftir að verkið hefur náð vinsældum eða vakið athygli í Evrópu. Eg bauð Dramaten hér „Rannsóknina". Þeir afþökkuðu. Eg bauð þeim „Hölderlin“ og þeir afþökk- uðu. Hvers vegna gekk þetta svona fyrir sig? Jú, vegna þess að leikhúsin hafa enn ekki komið auga á að það þarf sérfrótt fólk til að starfa við leikhúsin. Það þarf dramaturga með starfsmenntun, fólk sem kann að vinna með leikrit, kann að vinna með höfundi. Það gerist oft að leikhús fær leikrit til umfjöllunar, gott leikrit, en það getur skort vissa hluti og í þannig tilvikum þarf til dramaturg sem getur þróað verkið, verið höfundinum til aðstoðar. Öll leikhús í Evrópu hafa árum saman haft dramaturga á sínum snærum. Það er aðeins hér í Skandinavíu sem þetta er allt á lausu. Hefurþú unniðþín verk með dramaturg? Já, ég hef haft ákaflega náið samstarf við dramaturginn sem stýrði leikhús- forlaginu, sem ég skrifaði fyrir í upphafi. Hann vissi margt maðurinn sá og við ræddum saman um ótal vandamál. Veistu, ég held að enn þann dag í dag sé fólk í ráðandi stöðum við leikhús, og hefur ekki gert sér grein fyrir hve sviðskúnstin er erfið, hve vísindin á bak við eru margþætt. Leikhús er erfitt. Það er svo sannarlega ekki fyrir fúskara að fást við það ef árangur á að nást. Ég ræði ævinlega hverja einstaka senu við dramaturginn, skrifa um og skrifa aftur og skrifa aftur. Ég umskrifa flestar senur fimm, sex sinnum. Og það hefur komið fyrir að ég hef breytt verki eftir frumsýningu. Þegar komin er leikhúsreynsla á textann, þá þarf stundum að breyta. Ég hef notið frábærrar aðstoðar leikhúss- manna í Austurþýskalandi, það er leikhús í Rostock sem af hvað mestri sam- 390
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.