Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 166
Tímitrit Máls og mritniilf’tir
Lokaritgerð Kvæðafylgsna fjallar um
Leiðarljðð til Herra Jðns Sigurðssonar al-
pingismatins scm hlýtur að vera meðal þess
síðasta sem Jónas orti. Ég skal játa að ég
hef mcð öðrum fallið i þá grytju að lita á
niðurlag kvæðisins scm kuldalcgan anti-
klimax, sneið til Jóns fvrir stuðning hans
við þá ákvöröun að hafa alþingi i Rcykja-
vík. Með þvi móti veröur þó brotalöm á
öllu kvæðinu svo að maður hlýtur að
undrast hvers vcgna Jónas hætti ekki við
að flytja það og sat heima. Mcð skýringum
Hannesar á orðunum elta og vö/in er þess-
um vandræðum eytt. þótt cftir standi að
Jónas lætur ágrcining þeirra koma i ljós
mcð öðru. En eftir að fram er komin
túlkun Hannesar á niðurlaginu vaknar
spurning um livort hann gangi ekki sjálf-
ur of skammt. Er ekki öldungis rangt að
líta á niðurlagiö scm antiklimax og er
Jónas nokkuð að flytja sitt mál um al-
þingisstaðinn i þcssu kvæði? Sannarlega
var miklum áfanga náð mcð endurreisn
alþingis. Fjölnismenn og Jón Sigurðsson
hefur varla greint á um meginmarkmiðin
með starfi þcss og bæði Jónas og aðrir
bundu miklar vonir við forvstu Jóns. Um
það cr kvæðið glöggur vitnisburður. Jónas
lætur i ljós söknuð yfir að þinginu var
ckki valinn staður við Öxará cn meginefni
kvæðisins er áheit á Jón Sigurðsson að
eflast svo við endurfundi sína við þjóðina
og heimsókn á Þingvelli að jafnvel á möl-
inni megi hann koma fram þeim hug-
sjónum sem bundnar voru fornri frægð
Þingvalla. Auðvitað hefur Jónasi og öðr-
um Fjölnismönnum verið fullljóst að
endanlega mundu störf alþingis en ekki
staðurinn þar sem þaö sat ráða örlögum
þjóðarinnar. í kvcðjuhófi sem haldið var
foringja á leið til þings var stund til að
sameina framsækna sveit um meginstefnu
cn ckki til að ala á sundrungu.
Tvö af meiri háttar kvæðum Jónasar,
Giiiinarshðlmi og Ferða/ok, verða Hannesi
að viðfangsefni og eru það um leið veiga-
mcstu ritgerðirnar í bókinni. Gunnars-
hólmi er citthvcrt glæsilegasta og ágæt-
asta kvæði Jónasar og jafnframt eitt þeirra
sem svo að segja hvert mannsbarn á Is-
landi þekkir til. Þrátt fyrir þetta hafa
vmsar bábiljur um uppruna kvæðisins og
merkingu einstakra staða fengið að standa
óáreittar á prentuöum bókum um langt
skeið, jatnvcl verið haldið að unglingum.
Hannes endurgerir tilurðarsögu kvæðisins
þannig að unun cr að lesa og skýrir
náttúrulýsingu þess betur en áður hefur
verið gert. Hcr ettir ætti að vera bannað að
lcsa Gunnarshólma í skólum ncma a. m. k.
kennarinn hafi þessa ritgerð til hliðsjónar.
I þætti sinum um Ferðalok má segja að
Hannes kveði endanlega niður þann
draug sem Matthías Þórðarson mun
fvrstur hafa vakið upp, að Ferðalok sé
æskukvæði, ort i Öxnadal á sama sumri og
fcrðin norður var farin. Ekki hcfur þessi
skoðun fengið að standa óáreitt enda
margt sem mælir henni i mót. Hannes
tekur þessar rökscmdir saman og eykur
nvjum við þannig að enginn ætti nú að
þurfa að efitst um að Ferðalok eru ort á
árunum 1844/5, eins og eiginhandarrit
bendir til. 1 umfjöllun sinni um kvæðið
leiöir Hannes að því traust rök, að þaö hafi
umfram allt verið breyttar tilfinningar
Jónasar sjálfs sem leiddu til þess að ekkert
framhald varð á sumarást hans og Þóru
Gunnarsdóttur þótt hann reisti hcnni
siðar ævarandi minnisvarða með kvæðinu.
420