Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 18

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 18
Tímarit Mdls og menningar sem einkum felst í gerólíkri úrvinnslu þeirra vandamála er spretta af nefndri þrískiptingu. Þetta framlag ræði ég nokkuð í grein minni9 (hvers vegna í ósköp- unum hefði ég átt að gera það ef mér hefði þótt það ómerkilegt?), og tengi það síðan öðrum ritum Habermas sem mér finnast skipta máli fyrir umræðu um módernisma. Loks á ég væntanlega að þakka Halldóri fyrir að finna fyrir „óvæntum húm- or“ hjá mér á einum stað: hann segir mig spyrja hvort ólétta Þórbergs gæti ver- ið kvenleg reynsla (202). Mér er ósárt um að menn séu svolítið fyndnir á minn kostnað, en ég kýs þó að árétta að á tilvitnuðum stað er óléttan nefnd í tengsl- um við „móðursýkislega“ orðræðu sem finna má í Bréfi til Láru, við jaðar- stöðu sjálfsverunnar í samfélagi og við hugleiðingar mínar um (endur)holdganir sem mikilvægan þátt í „fagurfræði“ Þórbergs. Og í þessu sambandi nefni ég raunar einnig hið leiftrandi skop Þórbergs. Að lokum: ögn um borg og bókmenntir Þar sem Halldór leggur svona mikla áherslu á að sjá hið „broslega" og húm- oríska vekur það nokkra furðu mína að hann skuli bregðast hinn versti við þegar ég skýt að í sviga athugasemd í léttum dúr: „(Það er athyglisvert að Hall- dór Guðmundsson leggur svo mikla áherslu á að finna módernismanum fé- lagslegt samhengi að hann allt að því flytur evrópska stórborg uppá Island þriðja á ratugarins, en Matthías Viðar kann best við módernismann í exist- ensíalísku tómarúmi.)“ (288). Auðvitað er hér um ýkta lýsingu að ræða, þótt ég haldi vissulega að hún segi sitt um sjónarmið þessara fræðimanna. Ein og sér segir hún auðvitað ekki margt; Matthías Viðar gæti til dæmis auðveldlega snúið henni sér í hag (skapar ekki módernisminn visst existensíalískt tómarúm?). Halldór vitnar í þann hluta svigans sem að honum snýr og segir mig rangfæra orð sín um „stórþorgarvitundina" í Vefaranum (202). En þessi lýsing verður að skoðast í ljósi þess sem ég segi annars staðar í grein minni. Halldór segir að þegar Steinn Elliði sé kallaður „barn stórborgarinnar" sé auðvitað átt við erlenda stórborg. Kannski er hann þá sammála mér í því að sú „stórborgarvitund“ sem er að finna í Vefaranum sé af erlendum toga — hún er ekki til orðin í Reykjavík þriðja áratugarins. Samt er Vefarinn auðvitað íslenskt verk, rétt einsog Bréf til Láru, og þessi verk eru í sambandi við íslenskt samfé- lag á þriðja áratugnum. En þau sögulegu tengsl, sem Halldór sér, skýra ekki af- brigðilega stöðu þessara verka á sköpunartíma þeirra. Efling módernismans og tilurð módernísks viðmiðs í erlendum bókmennt- um og listum snemma á þessari öld eru oft skýrðar með hliðsjón af stórborg- inni og lífsháttum hennar. Eg gagnrýndi Halldór fyrir að gera ráð fyrir og und- irbyggja þennan sama félagslega skýringarhlekk milli módernisma Bréfs til Láru og Vefarans og þess samfélags sem gaf að líta í Reykjavík er þessi verk urðu til. Hann lítur svo á að hér á landi hafi verið orðin „sannkölluð menning- arbylting" á þessum tíma og hún hafi orðið mjög „hröð“ (Loksins, bls. 8 og 280
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.