Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Qupperneq 30
Tímarit Máls og menningar
veðrinu er lýst í smáatriðum og svo mætti lengi telja. Allt gefur þetta verk-
unum sannsögulegt og sannfærandi yfirbragð og bendir til að sögumaður
vilji telja lesendunum trú um að hann sé að skrá skipulegar æviminningar,
miðla sannri sögu æsku sinnar.
Helstu atburðir Islenzks aðals gerast sumarið 1912. Frásögnin hefst í
Reykjavík og segir frá piltinum Þórbergi sem er sveimhugult séní, yrkir
ljóð og elskar stúlku sem býr í sama húsi. Stúlkan fer norður í Hrútafjörð
til sumardvalar og Þórbergi þykir hann hafa himin höndum tekið þegar
hann kemst í vegavinnu í námunda við heimili hennar. Hann helst þó ekki
lengi við þar en ákveður að fara heldur í síld til Siglufjarðar. Þar er enga
vinnu að fá svo að Akureyri verður næsti áfangastaður og þar er hann um
sumarið, vinnur í síld og lifir viðburðaríku lífi í samfélagi við bræður sína í
andanum, unga menn sem eru uppteknir af sjálfum sér, ástinni og skáld-
skapnum. Um haustið heldur Þórbergur suður og hyggst koma við hjá
Elskunni sinni í Hrútafirðinum á leiðinni en þegar til kastanna kemur hefur
hann þó ekki kjark til að hitta hana. Hann heldur því ferð sinni áfram og
kemst við illan leik til Reykjavíkur þar sem sagan endar.
I íslenzkum aðli er yfirleitt sagt frá atburðum í sömu röð og þeir gerast
þótt sumsstaðar sé farið alllangt út fyrir sögutímann þegar verið er að segja
frá ýmsum aukapersónum sem koma sögu Þórbergs lítið við. En atburðirn-
ir í hans eigin sögu eru aftur á móti í réttri tímaröð og frásögnin að því leyti
hefðbundin. Allt öðru máli gegnir með Ofvitann sem er allmiklu stærra
verk en íslenzkur aðall. Utilokað er að rekja söguþráð Ofvitans í stuttu
máli en sögusvið verksins er Reykjavík og sögutími helstu frásagnaratrið-
anna eru árin 1909-1913. Þó eru stórar tímaeyður þar í, til dæmis sumarið
1912 sem greint var frá í íslenzkum aðli. Meðal þess sem sagt er frá í Ofvit-
anum er vera Þórbergs í Kennaraskólanum og Menntaskólanum, fyrsta
reynsla hans af ástinni og kynlífinu, hvernig hann eignast nýja félaga og
hvernig pólitísk vitund hans vaknar. Og einkanlega segir þar frá lífsbaráttu
hans, bæði andlegri og efnislegri. Líklega segir lýsingin á seinustu blaðsíðu
verksins allt sem segja þarf:
Og lýkur hér sögu ofvitans, sálarlýsingunni miklu, bókinni um baráttu um-
komulauss unglings í myrkrum mannheima í leit hans eftir vizkunni, í villum
hans í ástinni, í niðurlæging hans í örbirgðinni, frásögninni er ritin hefur ver-
ið af mestum frumleik og flekklausastri hreinskilni at norrænu máli. (354)
í Ofvitanum er rás atburðanna ekki rakin á jafn einfaldan hátt og í íslenzk-
um aðli, heldur eru efnisþættir látnir ráða ferðinni. Frásögnin skiptist í
þætti þar sem sagt er frá einhverjum tilteknum atriðum í lífi ofvitans Þór-
bergs en hver efnisþáttur nær oftast yfir nokkra kafla og þar er fylgt tíma-
292