Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 33
Brotin heimsmynd og verndaða samfélags, eiga séníin það til að slást; „upp á óflekkaðan heið- ur skáldlegrar andagiftar“ (1:135). Það sem einkum truflar viðleitni Þórbergs til að vera maður með mönn- um og skynja sjálfan sig einvörðungu sem snilling er fátækt hans og einstæðingsskapur þegar félagahópnum sleppir. Að vísu tilheyrir það ímynd sénísins að finnast það fallegt að þjást og svelta og Þórbergur reynir af alefli að sannfæra sjálfan sig um ágæti þess. Það er þó ekki síst þokkaleg staða efnahagsins í síldarvinnunni á Akureyri sem gerir lífið þar svo ljúft og ef illa gengur er þar líka alltaf hægt að fá félagahópinn til að stappa í sig stálinu. En þegar hann er á leið þaðan með skipi er hann aftur orðinn einn og auralaus og þá er stutt í örvæntinguna: Svona umkomulaus aumingi hefur aldrei verið til i heiminum fyrr. Ég á ekk- ert til, nýt ekki trausts hjá nokkrum manni, er alls staðar fyrirlitinn, hvar- vetna hæddur og hrjáður, hef rautt hár, sé hvergi grilla í eitt einasta úrræði annað en ævilangt strit, [. . .] (1:159) Þegar skorturinn gerir vart við sig fyrir alvöru kemst ekkert annað að í vit- undinni og allar hugsjónir verða hjóm eitt. I Ofvitanum kemur þar að Þór- bergur ungi er orðinn skólaus og ákveður eftir mikið hik að reyna að fá fé að láni hjá menntamanni sem hann kannast við þó að honum þyki ekki sæma að fala peninga hjá slíkum manni. En eftir að hafa rætt við doktorinn langa hríð um ættfræði og skáldskap og reynt að safna kjarki til að stynja upp erindinu verður hann skyndilega aftur að mikillátu séníi: Ég var vaxinn upp í eitthvað, sem var eilíft, hreint, dásamlegt, upphafið. Skó- leysið tilheyrði ekki lengur sjálfum mér. Þennan Þórberg Þórðarson vantaði enga skó. Þann, sem tilheyrir hinu eilífa, vantar aldrei neitt. Og hann biður aldrei um lán. (0:289) En stuttu síðar býst hann til að drekkja sér vegna skóleysisins: [. . .] þessari för get ég ekki frestað. Ég á enga skó, og ég get aldrei eignazt skó. Og sá, sem á ekki skó, hann verður að deyja. (0:301) Hann hættir þó við á seinustu stundu því að þrátt fyrir að fátæktin sé róm- antísk og enn rómantískara að drekkja sér hennar vegna verður lífslöng- unin lífhugsjóninni yfirsterkari þótt slíkt samræmist ekki hinni þráðu ímynd. Frá einni slíkri sveiflu segir í kaflanum „Fyrir dauðans dyrum“ í íslenzk- um aðli: „Ég svalt heilu hungri allan daginn og skammaðist mín fyrir að 295
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.