Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 39

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 39
Brotin heimsmynd en tær ást. Þetta var áreiðanlega sú sanna ást.“ (0:223) Það er hinn æðri maður Þórbergs unga sem talar, sá náttúrulausi. En vandinn er að Þórberg- ur þráir einnig að snerta stúlkuna og eignast, og það samræmist ekki hugmyndum hans um sjálfan sig. I hugarheimi hans eru ást og kvensemi óskyldar og ósamrýmanlegar kenndir sem tilheyra hvor sínum pól í heims- mynd hans; kvensemin tilheyrir kynmenninu, ástin skáldinu. Að snerta stúlkuna sem hann elskar er því útilokað, í því felst þverstæða. Þórbergur ungi neitar að gera sér grein fyrir því að óskir hans og vonir um stúlkuna geta ómögulega ræst, án þess að hann hafni jafnframt heims- mynd tvíhyggjunnar. Hann er oft kominn á fremsta hlunn með að uppfylla langanir sínar og snerta Elskuna, en hann vogar sér það þó aldrei. I stað þess telur hann sér trú um að tíminn sé nægur: „Eg verð kannski orðinn breyttur maður á morgun" (0:227) er eilíft stef hjá honum, þegar hann er nýbúinn að missa af tækifæri til að láta til skarar skríða, eða: „Það er nógur tími í haust.“ (1:25) Þannig blekkir hann sjálfan sig aftur og aftur, af því að hann getur ekki eða vill ekki hafna heimsmynd sinni; að snerta stúlkuna væri það sama og að hafna því að grundvallarandstæður heimsmyndarinnar séu ósættanlegar - það sama og að hafna grunnhugsun tvíhyggjunnar. Það er þessi sjálfsblekking sem knýr Þórberg unga áfram og gerir honum kleift að halda áfram ferð sinni í óbreyttum heimi við óbreytta heimsmynd. Hann telur sér trú um að markmið sitt sé athöfnin, að hafa kjark til að taka í höndina á Elskunni (og svo framvegis), en raunverulegt markmið hans getur ekki orðið annað en þráin, það að framkvæma ekki, af því að hann skortir kjark til að horfast í augu við þau vandamál sem athöfnin hefur í för með sér. Hann neitar að viðurkenna staðreyndirnar og það er það sem framvinda sögu hans byggist á, það er það sem er frásagnarvert í lífi sögupersónunnar. „Þessi ást var alltaf jafn-óklikkuð af fingraförum" (0:226) vegna þess að heimsmynd tvíhyggjunnar leyfir ekki að hið heilaga sé snert; samruni hins andlega og æðra og hins líkamlega og óæðra er útilokaður. Því er það, að í hvert sinn sem Þórbergur ungi nálgast stúlkuna tekur hugsjónin af honum völdin og hindrar hann í að framkvæma; þráin verður eina mögulega tak- mark hans. Sýnd og reynd Næstsíðasti kafli Ofvitans, sem segir frá atburðum er gerðust undir lok sögutíma bókanna beggja, ber nafnið „Elskan mín“ en segir þó ekki mikið af Elskunni. Þar lýsir Þórbergur því hins vegar að hann hafi komið sér upp nýrri lífsspeki til að forða sér frá „að missa fótanna undan þunga [síns] eig- in lífs.“ (0:308) Þessa speki segir hann hafa falist í „að taka ekkert alvar- 301
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.