Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 66

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 66
Tímarit Máls og menningar svo alltof algengur í verkum rithöfunda og skilur mann eftir einan og yfir- gefinn á brunasandi. Mikið hefur verið rætt og ritað um dirfsku Þórbergs í Bréfi til Láru. En mér finnst hafa verið horft of oft framhjá því að hann var alla tíð jafn djarf- ur höfundur og óháður tímans straumum. Hann gerði þrennt í senn í þeim stórvirkjum sem á eftir komu: hann bylti skáldsöguforminu, ævisöguform- inu, nálgaðist mál og stíl út frá nýjum forsendum, og þetta gerði hann þrá- sinnis allt í senn í einni og sömu bókinni og í hvert skipti á ferskan hátt. Rökkuróperan var enn ein nýjungin, þótt hún léti kannski minna yfir sér við fyrstu sýn, og sá sem skrifaði kominn vel á sjötugsaldur. „Mín ópera á skautaferðum var upphafning til hins yfirnáttúrlega. Mér þótti skemmtilegast að fara á skautum í rökkrum og tunglsljósum. Þá var allt orðið óskírt og djúpt og dularfullt og ískyggilegt og spennandi, og verkaði miklu verulegar og smaug dýpra inn en við dagsbirtuna.“ Svona er ekki öllum gefið að skrifa. Örfá orð að lokum um „sannfræðina“ í bókum Þórbergs. Að mínu áliti hefur margfræg sannleiksást hans verið mistúlkuð gegnum tíðina. Hún snerist ekki um vigt og vegalengdir í raun og veru, heldur um mun stærri möndul; sjálf frumelement mannlífs og allífs. I Rökkuróperunni skiptir ekki höfuðmáli hvað það eru margir faðmar veggja á milli í baðstofunni eða hversu mörg skref eru niður að Lóni. Hér er verið að gera dýptarmælingar á tilverunni einsog hún leggur sig, MEÐ FRJÁLSRI AÐFERÐ. Á mál- þingi um Þórberg nú í vor urðu einhverjir uppnumdir þegar það kom á daginn að hann hafði eftir allt saman hitt elskuna sína á Borðeyri á suður- leiðinni; þóttust nú hafa náð að minnsta kosti hálfum nelson á kallinum. Þetta sýnir gleggra en margt annað hve seinir Islendingar ætla að verða til að botna almennilega í sínum mesta 20. aldar höfundi. Þórbergur var skáld framar öðru, í þess orðs sönnustu merkingu: og það sem gerði hann einmitt meðal annars að svona frábærum skáldsagnahöfundi var að hann þreyttist aldrei á að ljúga okkur full um að hann væri að segja satt. I fjórðu bók segir svo: „Fólkið var svo frómt í sér, að því kom ekki til hugar, að höfundar væru að ljúga upp sögum, sem voru sagðar einsog þær væru sannsöguleg- 328
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.