Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Síða 67
Einar Bragi
Um fæðingarár Þórbergs
Alkunna er að menn hefur lengi greint á um hvort Þórbergur Þórðarson sé
fæddur árið 1888 eða 1889. Eg heyrði fyrst á þennan ágreining minnst 1939.
Líklega hefur málið borist í tal heima vegna fimmtugsafmælis Þórbergs eða
bókar dr. Stefáns Einarssonar: Þórbergur Þórðarson fimmtugur. Þá hafði
móðir mín það eftir móður sinni Guðnýju Benediktsdóttur að henni þætti
skjóta skökku við um fæðingarár Þórbergs, því að þær Anna á Hala hefðu
verið vanfærar samtímis að frumburðum sínum. Þær voru systkinadætur
og áttu heima á sömu torfunni; amma Guðný bjó þá á Breiðabólstað í Suð-
ursveit. Dóttir hennar Auðbjörg fæddist 1. desember 1887 og Þórbergur 12.
mars 1888, að hún taldi. Amma Guðný var vorið 1939 sjötíu og þriggja ára
og vel minnug. Eg hef því nú í hálfa öld verið sannfærður um að hún hafi
haft rétt fyrir sér - og er það enn.
I nýútkomnu úrvali úr ritum Þórbergs, Þegar ég varð óléttur, segir annar
umsjónarmanna útgáfunnar (bls. 183): „Af kirkjubókum má ætla að hann
hafi fæðst árið 1888, en móðir hans kvað frumburð sinn fæddan árið 1889
og er ekki ástæða til að vefengja það.“
Hefði Anna á Hala sannanlega sagt það sem henni er hér lagt í munn
væri ærin dirfska að vefengja orð hennar, því hún mátti gerst vita hið rétta.
Hitt get ég ekki annað en efast um að hún hafi nokkurn tíma látið hafa
þetta eftir sér, uns eitthvað haldbetra kemur fram í dagsljósið en ég hef
hingað til séð.
Mér vitanlega eru ekki til neinar skjalfestar samtímaheimildir fyrir því,
að Þórbergur sé fæddur 1889, en margar sem styðja árið 1888, og er rétt að
líta á nokkrar þeirra:
1. I „Ministerialbók Kálfafellsstaðar 1847-1911“ eru á sömu opnu skráð sex
börn fædd í Suðursveit 1888, fjórir drengir á vinstri síðu, tvær stúlkur á
þeirri hægri. Ofan við nafn fyrsta drengsins er ártalið 1888 skrifað skýr-
um stöfum og 1889 neðan við nafn hins fjórða, svo að afmörkun milli
ára er eins ljós og verða má.
Hefði Þórbergur verið aftastur í röðinni hefði það svo sem vel getað
gerst fyrir slysni að nafn hans lenti öfugu megin við töluna 1889, en
sveinarnir eru að venju skráðir í þeirri röð sem þeir fæðast og Þórbergur
TMM V
329