Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Síða 69
Um faðingarár Þórbergs
dagabók sem Lússía móðir þeirra á. I hana hefur hún skrifað fyrir
mörgum árum nafn Ragnars bróður síns 26. maí og fæðingarárið 1888.
Loks má nefna að Ragnar getur ekki verið fæddur 26. maí 1889, því að
Benedikt bróðir hans er fæddur 22. nóv. það ár.
2. í „Húsvitjunarbók Kálfafellsstaðar 1881-1888“ er aftast fært „Fólkstal í
Kálfafellsstaðarprestakalli við húsvitjun 22.-24. 12. ’88“. A Hala eru
fyrst talin hjónin Þórður Steinsson og Anna Benediktsdóttir, en hið
næsta þeim „þra barn á 1. ári“. Oðru barni þeirra en Þórbergi er ekki til
að dreifa. Bókin nær ekki lengra en til ársins 1888, og væri undarlegt ef
prestur hefði við húsvitjun í desember það ár skráð barn sem fæddist
ekki fyrr en í mars á næsta ári. Þórbergur er síðan skráður á Hala í hús-
vitjunarbók Kálfafellsstaðar árlega til 1905, aldurs hans ævinlega getið
og kemur alltaf heim við fæðingarárið 1888. Arið 1906 fór hann burt úr
Suðursveit.
3. I fyrrnefndri Ministerialbók Kálfafellsstaðar er Þórbergur skráður með-
al fermdra sveina 1902, getið fæðingardags hans og árs, einnig aldurs í
árum og broti úr ári: fæddur 12. mars 1888; 142/12 ára. Eg hef athugað
aldur fermingarbarna í Suðursveit um tuttugu ára skeið (1890-1910), og
öll voru þau orðin 14 ára eða urðu það á fermingarárinu. Væri Þórberg-
ur fæddur 1889 hefði hann verið fermdur liðlega 13 ára, en slíkt tíðkaðist
alls ekki.
4. Þórbergur segist hafa verið látinn heita eftir afasystur sinni Þorbjörgu
Þorleifsdóttur frá Hólum í Nesjum. „Hún andaðist haustið áður en ég
fæddist,“ skrifar hann (I Suðursveit, bls. 23). „Ministerialbók Bjarnaness
1882-1914“ segir Þorbjörgu hafa dáið 9. desember 1887.
Allt ber þetta að sama brunni.
Þær kirkjubækur sem ég hef vitnað í eru allar vel varðveittar í Þjóð-
skjalasafni Islands.
Mér virðist augljóst að ártöl hafi einfaldlega skolast - sennilega í minni
Þórbergs sjálfs. Annað eins hefur þráfaldlega gerst fyrr og síðar og telst
ekki til stórtíðinda. Enginn vafi er á að Þórbergur var á vissu skeiði ævinn-
ar sannfærður um að hann væri fæddur 12. mars 1889. I ódagsettu uppkasti
að bréfi til dr. Stefáns Einarssonar sem virðist skrifað 1934 segir hann það
hiklaust. Síðar tekur hann varfærnislegar til orða. í Steinarnir tala sem fyrst
voru útgefnir 1956 segir hann: „Mér var sagt, að ég hefði fæðzt í þennan
heim 12. marz 1889“ (í Suðursveit, bls. 20).
Segja má að litlu skipti hvort skáld vort telst fætt árinu fyrr eða síðar, og
ég á ekki von á að farið verði að leiðrétta þennan rugling héðan af. Hinu er
331