Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 84
Tímarit Mdls og menningar þáttur í ferli, ljóðin eru orðin innhverfari, persónubundnari og um leið er enn meiri alúð lögð við tjáningarformið. Það er erfiðara og mikilvægara að ná sambandi. Það er nauðsynlegt að komast að sjálfum kjarnanum, ómögu- legt að miðla honum og hið ómögulega samband þess sem talar og þess sem hlustar verður kjarni ljóðanna. Stökur Jónasar Hallgrímssonar síðasta veturinn sýna þetta vel. Hann yrkir um einmanaleika, afhjúpun blekkinga og firringu. Hann yrkir um tímann og um ástina sem engin er: „hefði ég betur hana þekkt/sem harma ég alla daga.“ Og einsemd í lífi og dauða: Enginn grætur Islending einan sér og dáinn, Einmanaleikinn og það að standa utan við tíma hversdagsfólksins eru al- geng þemu í rómantískum skáldskap. Sumir segja að einmanaleikinn sé for- senda hins rómantíska ljóðs. Það sem Jónas gerir er að hefja rómantíska klisju upp úr tilfinningasemi og sjálfsvorkunn, með samblandi af hálfkæringi Heines og ekki síður - úr- drætti Islendingasagnanna. Stílbragðið „úrdrátt" (understatement) þekkja allir Islendingar, ef ekki sögu- og bókmenntafræðilega, þá menningar- og tilfinningalega: stílbragð- ið „úrdráttur" þýðir að það sem sagt er frá er of stórt, of viðkvæmt eða of herfilegt, til að hægt sé að segja frá því. Til að hægt sé að gefa þessari reynslu form verður að minnka hana, draga úr henni: Enginn grætur Islending einan sér og dáinn, þegar allt er komið í kring, kyssir torfa náinn. Lifðu sæl við glaum og glys, gangi þér allt í haginn; í öngum mínum erlendis yrki ég skemmsta daginn.23 Ástin Umræður strákanna um kvenfólkið í bréfum frá því fyrir miðja nítjándu öld eru um sumt erfiður lestur konu. „Þjer er velkomið að segja mjer fleira frá þeim (þ.e. mellunum, DK), þó mjer sje reyndar illa við kvennfólk í dag; guð fyrirgefi mér að hatast við dauða hluti!“24 segir Konráð í bréf til Jónas- ar. 346
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.