Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 133

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 133
samhengið er ekki höfuðatriði, heldur blær tímans og málsins og vandi forms- ins. Stíll og efnistök eru með þeim hætti að þar ægir saman hvers konar dóti. Samhengið er kannski ekki þaulhugsað en fjölbreytnin og hugsunarauðgin er mikil, margt skringilegt kemur upp á yfirborðið, tengingar, hugdettur, skrýtlur, smábrot - eins og terrassógólf. Meðal höfundareinkenna Þórarins Eldjárns er að hann notar fjölbreytt form, hann hefur áhuga á ýmsum fræð- um, einkum íslenskum bókmenntum og sögu, hann er fyndinn höfundur og loks er málfar hans vandað, vald hans á tungunni gott. Segja má að öll þessi ein- kenni komi glöggt fram í Skuggaboxi. Mjög er athyglisvert hvernig höfund- ur tengir saman þjóðlegan fróðleik og módernískt skáldsöguform í Skugga- boxi. Kímnigáfa Þórarins og tungutak eru hér einnig í besta lagi, og þykir undirrituðum fyndni Þórarins yfirleitt mun betur heppnuð í Skuggaboxi en í smásögum hans. Þórarinn hefur áður tengt saman þjóðleg fræði og nútíma- lega hugsun t.d. í Disneyrímum og sög- unni „Tilbury" (og auðvitað miklu víð- ar); en í Skuggaboxi er sem hann valdi þessari tengingu betur en fyrr. Hér gengur allt betur upp meðal annars vegna þess að hið móderníska form krefst þess ekki að ráðning allra tákna sé einhlít. Skuggabox er hápunktur á ferli skáldsins hingað til. Arni Sigurjónsson MERKILEG BÓK UM ÞÝÐINGAR Heimir Pálsson og Höskuldur Þráinsson Um þýdingar Iðunn 1988 Segja má að bók Heimis Pálssonar og Höskuldar Þráinssonar um þýðingar komi á hárréttum tíma og fylli upp í eyðu í umræðu sem farið hefur fram undanfarin ár um vandann að þýða. Eins og höfundar gera grein fyrir í inngangskafla eru þýðingar orðnar geysilega mikilvægur þáttur í upplýs- ingaþjóðfélagi nútímans. A hverjum degi berst mikið erlent efni í gegnum fjölmiðla í formi allskonar nytjatexta og bókmenntatexta og miklu máli skiptir hvernig tekst að leiða þetta textaflóð inn í íslenskt þjóðfélag. Svo virðist sem að Drottni hafi tekist fullkomlega ætlunarverk sitt að skapa ringulreið, þegar hann steig niður og ruglaði tungumál manna sem voru orðnir metnaðargjarnir um of, eins og sagan um Babelsturninn greinir frá. Að minnsta kosti veit enginn hvernig á að standa skipulega að þeirri geysilegu vinnu sem leiðir af því að jörðin hefur ekki lengur eitt tungumál, og menn sem tala ekki sama tungu komast kátbros- lega stutt á leið til hátindar fullkomnun- ar, þegar þeir eru að smíða hugsjónir saman á sitt hvoru tungumálinu. Um þýðingar getur orðið skref í rétta átt, ef menn sem fást við þýðingar nenna að kynna sér þær vinnureglur og hugmyndir sem höfundar setja þar fram. Því málið er kannski fyrst og fremst að þýðendur hafa ekki fremur en aðrir efni á að vanda sig og verða oft að snara ómældum texta í aukavinnu á kvöldin eða um helgar. Eins og höfundar taka fram í formála 395
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.