Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 62

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 62
bandi ómaksins vert að velta fyrir sér, í hverju hin tragíska reynsla sé fólgin og hvert sé innsta eðli tragedíunnar. Margt hefur á liðnum öldum verið skrifað og skrafað um fjölbreytilega gagnsemi tragedíunnar og þann mjög svo misjafna skilning sem menn leggja í hana — og að sjálfsögðu er til vitnis um lífskraft og frjó- semd þessa tiltekna tjáningarforms. Rithöf- undar fyrr og síðar hafa sótt til hennar innblástur og fordæmi, og er skemmst að minnast þeirra rithöfunda á meginlandi Evrópu sem á tímum mikilla þrenginga og aðsteðjandi háska fyrir veigamikil mannleg verðmæti leituðu til hinna fomu snilldar- verka um fyrirmyndir samtímatúlkunar á hinum sígildu goðsögnum, sem hafa í sér fólgna tjáningu á hinsta vanda mannsins, bæði pólitískum, tilvistarlegum og trúar- legum. Meðal þessara höfunda ber vissu- lega að minnast manna á borð við Anouilh, Giraudoux, Sartre, Cocteau, Yourcenar og Espriu. Það sem allar þessar merkilegu og lofsverðu tilraunir áttu sameiginlegt var, að þær lögðu áherslu á einn þátt hinna fom- grísku leikhúsverka, það er að segja pólit- íska þáttinn, en slepptu trúarlega þættinum, sem að mínu mati er mikilsverðasti þátt- urinn, og fyrir bragðið urðu þessar tilraunir stað- og tímabundnar; þær skorti eitthvað af tilfinningaorku og algildi hinna fornu fyrirmynda. Hugtakið „tragedía" er stundum notað nokkuð frjálslega og látið ná yfir hverskyns hörmungar og harmsögur, sem kannski er skiljanlegt með hliðsjón af háum aldri þess, en veldur einatt túlkunarerfiðleikum. Ég hef heyrt talað um „bjartsýna tragedíu“ og þykir það engin goðgá, þareð tragedían er í innsta eðli sínu fjörgjafi, en á erfiðara með að skilja orðtök einsog „tragedía ald- arinnar“. Þegar lögð eru að jöfnu hugtakið „tragískur" og hugtök á borð við „ömur- legur“, „átakanlegur“, „hörmulegur“ eða „grimmilegur“, þá virðist mönnum sjást yf- ir hvað hin foma tragedía og tragedía yfír- leitt felur í sér. Þessi öld hefur vissulega verið hörmuleg og grimmileg og skammarleg, en mér er til efs að hún hafi verið tragískari en aðrar aldir, af þeirri einföldu ástæðu að það sem tragískt er verður aldrei mælt í magni, held- ur er um að ræða einstaklingsbundna reynslu, sem í innsta kjama sínum er trúar- leg. Sex milljónir dauðdaga em í eðli sínu ekki tragískari en einn dauðdagi, afþví sál- arlífi okkar er þannig háttað, að við þolum ekki nema ákveðið magn af þjáningu. Einn dauðdagi með öllu sem honum er samfara er hámark þess sem við fáum afborið á tilteknu andartaki. Um það má hinsvegar deila, hvort traged- ían sé það tjáningarform sem best hentar til að túlka aðstæður þessarar aldar. Frá einu sjónarmiði má halda því fram, að kvik- myndinni hafi betur auðnast að tjá öldina en leikhúsinu. Hef ég þá í huga snilldarmenn kvikmyndanna á borð við Chaplin, Eisen- stein, Dreyer, Bergman, Bunuel, Saura, Fellini, Cocteau, Tmffaut, Tarkovskí, Wajda, Kúrósawa, Cacoyannis og Costa- Gavras, svo nokkrir séu nefndir af handa- hófi. En tragedían er eiaðsíður það listform sem gagngerast og marktækast tjáir og túlk- ar örlög mannsins og aðstæður, kjama þess að vera mennskur og lifa í félagslegu sam- hengi. Það er ekki vegna þess að tragedían líki eftir þjáningum eða atferli mannkyns, heldur vegna þess að hún er mynstur eða form sem gerir okkur fært að virða fyrir okkur mannlífið í nærsýn, horfa í senn á 60 TMM 1990:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.