Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Blaðsíða 113
nótt og í stað Mjallar er hjá honum persóna sem
kölluð er Skuggi. Hver er þessi Skuggi? Það er
ógemingur að segja. Hann er krúnurakaður og
gengur með pípuhatt, er „grannur með hátt enni
og þunnar varir og litla höku og dökk gleraugu".
Hann lítur út fyrir að vera á svipuðum aldri og
Steinn. Þegar Skuggi hefur vakið Stein upp og
gert að sámm hans, leggja þeir af stað í ferð um
einkennilega skuggaveröld þar til þeir ganga
upp stiga og út um dyr á kofa skammt ffá bað-
strönd.
Leyndir þræðir tengja sögumar tvær saman
og raunar einnig veraldimar tvær. Einstakir
hlutir hverfa úr heimi Steins og Mjallar og koma
fram með óútskýranlegum hætti í heimi
Skugga. Þannig grípur Skuggi blauta rúsínu úr
lausu lofti, sem Steinn hafði stungið niður í
gegnum ristina á eldhúsvaskinum í húsi hans og
Mjallar. Á kaffihúsinu „Café de Réve“ eða
„Draumakaffinu" segir Steinn Mjöllu ífá öðm
kaffihúsi í lítilli borg í fjarlægu landi í norðri þar
sem látin skáld ganga aftur í speglunum á veggj-
unum. I næsta kafla erum við komin inn í veröld
Skugga en nú era þeir Steinn og Skuggi komnir
inn í gang sem er á bakvið áðumefnda spegla.
Þar er einnig kaffihús og Steinn er kallaður fram
í eldhús þar sem ung kona bíður hans. Það er
Mjöll og hún er einnig í heimi Skugga en þar
mega Steinn og Mjöll ekki vera lengi saman.
Söguheimamir tveir renna saman í lok bók-
arinnar. Mjöll og Steinn aka á bifhjóli eftir vegi
um nótt. Þau em á leiðinni heim af ströndinni.
Skuggi og Steinn aka einnig eftir vegi um nótt
á reiðhjóli fyrir tvo. Brátt kemur í ljós að þetta
er sami vegurinn og sama nóttin. Mjöll og
Steinn fara á undan, Skuggi og Steinn á eftir.
Þegar Steinn hefur misst stjóm á bifhjólinu og
liggur á veginum, en Mjöll svífur áfram, koma
Steinn og Skuggi að slysstaðnum. Steinn dettur
af hjólinu á veginn en Skuggi reynir að ná taki
á stúlkunni og grípur í skó hennar. Hún smeygir
sér úr skónum, brosir og svífur áfram.
Það er augljóst af því sem þegar hefúr komið
fram, að Engill, pípuhattur og jarðarber er eng-
in raunsæisfrásögn. Á hvomgu tilverusviðinu
sem sagan fer ffam á bindur skáldið sig við það
sem erraunverulegt, ekki einu sinni við það sem
er sennilegt. Til dæmis prýða syngjandi jarðar-
beijatré stræti bæjarins þar sem þau Mjöll og
Steinn dvelja.
Að leyfa hugarfluginu að hagræða vemleik-
anum á þennan hátt hefur oft verið kennt við
súrrealisma, enda hefur Sjón aldrei leynt því
sem hann á þeirri listastefnu að þakka. Stíll
bókarinnar og myndmál er öll í anda hennar en
Sjón vinnur á afar persónulegan og jafnffamt
áhrifaríkan hátt úr henni. Myndimar sem hann
dregur upp em sumar hverjar ákaflega óhugn-
anlegar. Flest dæmi um það koma fyrir í
skuggaveröldinni, t.d. á bls. 130 þegar Steinn
og Skuggi hitta fyrir manninn sem hafði leigt
Mjöllu og Steini bifhjólið. Þessi maður hneppir
frá sér jakkanum og í ljós kemur gapandi kvið-
arhol. Hundur hans stekkur inn í það og tekur
til við að naga á honum hrygginn.
En ekki er allt tómur hryllingur í skugga-
veröldinni. Sumar myndimar sem dregnar eru
upp eru af allt öðmm toga, þó frumlegar séu,
t.d. eftirfarandi lýsing á líðan Steins þegar hann
hittir Mjöllu fyrir á kaffihúsinu handan spegils-
ins:
Steinn fann hláturinn vaxa inni í sér eins
og bamshönd en þegar hann ætlaði að
skella upp úr krepptist hún í hnefa og sat
föst í barkanum svo honum lá við köfn-
un. Andartak sortnaði honum fyrir aug-
um. Og leið vel. (72)
Sjón bregður oft á leik með tungumálið. T.d.
notar hann hljóðlíkingar á einum stað til að
tengja saman tvo kafla sem eiga sér stað hvor í
sínum heiminum. Kafli 3 endar á því að Mjöll
segir um heimilisköttinn: „Boris er læða
Steinn.“ Kafli 4 hefst á orðunum „Læðast
einn!“. En nú er það Skuggi sem segir þessi orð,
og bætir síðan við: „Læðast tveir, læðast þrír.“
Þetta er skemmtilegur leikur sem hefur þann
tilgang að tengja saman þessa tvo ólíku heima,
sem verið er að lýsa í verkinu og búa lesendur
TMM 1990:3
111