Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 32

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 32
Janka fékkst ekki til að játa á sig landráð þótt hann væri yfirheyrður 10 til 12 tíma á dag í rúma átta mánuði. Aður en réttarhöld- in hófust var hann látinn liggja í háfjallasól og síðan færður í fín jakkaföt, hvíta skyrtu og blankskó, svo helst leit út fyrir að hann hefði skroppið á frönsku Rivíeruna enda við því að búast af svona spilltum manni. Hann var keyrður í brynvörðum vagni til dómhússins svo að borgarbúum mætti verða ljóst hvers konar náungi þetta væri. I réttarsalnum sat stjóm listamannasamtak- anna, að skipun Ulbrichts, yfirmenn bóka- forlaga, prófessorar frá Humboldtháskól- anum og stjórn rithöfundasambandsins, þar á meðal Anna Seghers sem var mjög föl yfirlitum. Réttarhöldin minntu Janka á nas- istatímann. Saksóknarinn Melsheimer öskraði fremur en talaði og endurtók í sí- fellu að Janka væri gagnbyltingarmaður, sósíaldemókrati, svikari og síonisti. A með- al áhorfendanna að þessari undarlegu skemmtun sátu ungir menn í bláum skyrt- um á víð og dreif um salinn sem hrópuðu húrra fyrir öskrum saksóknarans en stöpp- uðu niður fótum og púuðu í hvert sinn sem verjandi Jankas tók til máls þannig að ekk- ert heyrðist í honum. Eitt orð frá Önnu Seghers hefði nægt til að bjarga Janka og hún hefði ekki tekið neina áhættu. Að Bert- olt Brecht látnum var hún virtasti rithöfund- ur Alþýðulýðveldisins, Ulbricht hefði ekki þorað að snerta hár á höfði hennar. En hún vissi að flokkurinn myndi bíða hnekki ef hún segði sannleikann. Skáldið og ráðherr- ann Johannes R. Becher lét ekki sjá sig við réttarhöldin og bar við veikindum. Janka var dæmdur til fimm ára fangelsis- vistar og sendur í hið illræmda fangelsi Bautzen skammt frá Dresden en þar hafði hann setið áður sem fangi nasista. Einu mótmælin sem bárust komu frá útlöndum, frá Eriku Mann, Lion Feuchtwanger, Her- mann Hesse og Halldóri Laxness. Bréfið frá Laxness er á þessa leið í íslenskri þýð- ingu minni: Reykjavík, 19. júní 1958 Til forseta Austur-þýska Alþýðulýðveldis- ins, hans hágöfgi Wilhelm Pieck. Berlín, Þýskalandi Yðar hágöfgi. Það hryggir mig að heyra að fyrrverandi útgefandi minn í Austur-þýska Alþýðulýð- veldinu og eini vinur minn í Þýskalandi öllu, Walter Janka, hafi setið í fangelsi í Þýskalandi í meira en eitt ár af pólitískum ástæðum. Sem útlendingi dettur mér auð- vitað ekki í hug að skipta mér af þýskri innanríkispólitík. Ég efast heldur ekki um að minn góði vinur hafi verið dæmdur eftir tilheyrandi paragröffum þótt dagblöð í Skandinavíu hafi lýst því yfir að dómurinn yfir honum hafi verið stórgallaður. Ég bið yður að athuga, herra forseti, að ég fylgi engu öðru en eigin dómgreind í mati mínu á Walter Janka og að ég sný mér ekki til yðar ágætis sem fulltrúi ólíkra lagabókstafa í siðferðilegum og réttarfarslegum efnum, heldur sem nágranni til nágranna. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við Norður- landabúar og Þjóðverjar sama þjóðin, reyn- um því að auðsýna hverjir öðrum gagn- kvæman skilning. Ég vil taka fram, alveg án tillits til úr- skurðar dómstólanna, að ég kynntist Walter Janka ekki einasta sem heiðarlegum, grandvörum og traustum forleggjara, held- ur líka sem hreinlyndum persónuleika og göfugum manni. Hann var slíkur maður, að á meðal útgefenda minna í hinum ýmsu löndum finnst í mesta lagi einn, fyrir utan hann, sem ég myndi skrifa bónarbréf fyrir í því tilfelli að hann yrði fangelsaður. 30 TMM 1991:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.