Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 96
Ladogin í fyrsta sinn, Malmberg hafði oftsinnis skipt við hann í Moskvu, sem og þegar Ladogin heimsótti Finnland, útvegað vörur, orðið konu Ladogins úti um gullbrú hjá finnskum tannlækni á reikning fyrirtækisins. Við snæddum um stund án þess að tala. Síðan bað borgarstjóri túlkinn að þýða, greip snafsaglasið, lyfti, útskýrði, að hann væri ekki kaup- sýslumaður heldur þjónn borgarbúa, vikapiltur skattgreiðenda, en hann teldi góð samskipti landa okkar hLa mikilvæg: borgin ætti vinabæ í Hvíta-Rússlandi, og borgarstjóri sagðist eiga þar marga góða vini; hann vonaðist til að Ladogin bættist í hóp þeirra eftir þessi stuttu kynni. Drukknar skálar. Þjónamir helltu aftur í glösin. Ladogin sagðist hafa verið Finnlandsvinur alla ævi, þótt ekki væri hann frá Karelíu eins og nafnið benti til. Borgarstjórinn spurði hvaðan. Ladogin sagðist vera einn af Moskvusonum. Hann var kominn vel yfir sextugt og ég minntist þess að hafa heyrt að eftir stríð hefði hann komist til æðstu metorða í verslunarsamtökunum með kjafti og klóm og tollað á toppnum þrátt fyrir allar pólitískar væringar, aldrei fastari í sessi en þegar gömul viðhorf endurheimtu gildi sitt í Rússlandi. Ég sagði, að borgarstjóri og Ladogin hefðu ekki átt að ræna mig gestgjafaréttinum til að mæla fyrir hinni fyrstu skál við matborðið; af þeim sökum yrðu þeir nú að drekka þriðja Koskenkorvann. Það þóttu engir afarkostir. Þjónninn kom með snafsana. Ég sagði, að búið væri að mæla fyrir öllum mikilvægum opinberum skálum og drekka þær, því skyldum við nú lyfta glösum til þess eins að tæma þau. Við drukkum. Ladogin bað strax um annan umgang og sagði, að aldrei mætti standa upp frá borðum, nema drukkin hefði verið skál kvenna, þessa mjög svo mikilvæga og yndislega glingurs karlmannanna. Þetta skipaði Ladogin mér að taka sérstaklega til athugunar, því ég væri ungur að árum og ætti margt óreynt. Drukkin var skál konunnar. Með aðalréttinum drakk Ladogin viskí og sóda. Hann vildi ekki vínið, sem yfirþjónninn hafði mælt með við mig, dýrt franskt hvítvín, og við neyddumst til að drekka það án Ladogins. Ég var að vona, að hann smakkaði að minnsta kosti á víninu, sem ég hafði valið af þvílíkri kostgæfni, en nú vildi Ladogin halda sig alfarið við viskí. Hann varfarinn að tala þýsku, löngum, hægum og klunnalegum setningum og gleymdi jafnharðan hverju hann var að segja frá. 94 TMM 1991:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.