Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Blaðsíða 100
kumpánlegustu í sófanum og drukku bræðraskálar. Túlknum hafði verið
skipað að sitja andspænis þeim og meðan Ladogin talaði strauk hann
túlknum um hnén báðum höndum.
Við sátum við stofuborðið. Malmberg og Meriláinen voru að rífast
um, hvort Malmberg hefði selt Svíum einhverja pöntun á lægra verði en
Meriláinen hafði gefið upp að kostaði að framleiða.
— Ekki er von að fyrirtækið styrkist, ef við kaupum það inn á hærra
verði sem þú selur út. Svo mikið skil ég, þótt ég sé ekki hagfræðingur,
sagði Meriláinen.
— Það gæti orðið ódýrara en að láta tvöhundruð manns standa
aðgerðarlausa og borga þeim kaup, sagði Malmberg letilega. Ég sá, að
hann tók umræðuefnið ekki eins alvarlega og Meriláinen.
— Við Valeri hefðum vel getað skotið hvor annan óvart, hrópaði
borgarstjóri til okkar af sófanum. Þeir Ladogin tóku út úr glösunum því
til heiðurs.
— Þið hafið haft góðar byssur, fyrst þið gátuð skotið frá Viborgarflóa
til Moskvu og öfugt, sagði Malmberg. Ladogin heimtaði að túlkurinn
þýddi og er túlkurinn hafði þýtt stóð hann upp, kom slagandi að borðinu,
tók fast utanum Malmberg, kyssti hann þétt á báðar kinnar og sleppti
Malmberg síðar aftur ofan í stólinn
— Sölustjórinn þarf að geta hugsað, sagði Ladogin á þýsku.
III
Borgarstjóri byrjaði að tala um gufubað. Hann sagði, að þeir hefðu enn
ekki komist með Ladogin í gestagufubað borgarinnar, þótt Ladogin hefði
verið lofað því. Að mati borgarstjóra kom heldur ekki til greina að
stórvinur Finnlands eins og Ladogin slyppi úr landi án þess að fara í
gestagufubað borgarinnar, sem væri einmitt þyggt fyrir fé borgarbúa til
að nota við slík tækifæri: til að efla heimsfrið og vináttu meðal þjóða.
Borgarstjóri hóf að hringja, náði í menn, útskýrði í símann og skipu-
lagði gufubaðið. Eftir símtaiið tjáði hann okkur, að fólk frá menningar-
nefndinni hefði verið í gestagufubaðinu; hann hefði rekið það burt og náð
í gæslumanninn og konu hans, sem höfðu lofað að fara og hreinsa til í
gufubaðinu, tína upp og fela tómar bjórflöskur eftir menningamefndina
98
TMM 1991:4