Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Síða 91
maður að fitla við lásinn til þess að ná út skothylkinu. Og meðan á því
stendur eru stórlandeigendumir ekki sofandi, félagar. I öðru lagi þarf
maður að miða mjög nákvæmlega til þess að hitta skotmarkið. Ef maður
miðar ekki nógu vel flýgur kúlan venjulega eitthvert út í buskann og
kemur ekki að neinu gagni. í þriðja lagi er það hættan sem fellst í því að
standa og miða beint fyrir framan óvinina ...
Þótt hann langaði mikið til þess, stillti Meistari Melitón sig um að
segja þeim að Bólivía hefði tapað stríðinu við Paraguay einmitt vegna
þess að indíánamir höfðu ekki miðað nógu nákvæmlega í skotgröfunum
á Chaco-svæðinu. Þegar hann hitti vini sína á billiardstofunni hjá Marcel-
ino, þar sem indíánarnir fengu enn ekki aðgang, sagði hann þetta hrein-
skilnislega og það vakti hrossahlátur meðal kynblendinganna sem vom
með honum: „Indíánamir lyftu aldrei höfðinu upp úr skotgröfunum, þeir
skutu bara upp í himininn og drápu stjömur ...“.
— Það eru til betri vopn ...
— Og hver em þau þá?
— Ah, til dæmis fallbyssan.
— Fallbyssan?
— Já, fallbyssan, félagar.
Fregnir um þessa nýjung höfðu aldrei fyrr borist indíánunum til eyma
og það var unaðslegt að heyra nú svona stórkostlega opinbemn af vömm
sjálfs skraddara bæjarins.
— Og hvemig er fallbyssan?
Meistari Melitón brosti. Hann tók kefli með styrktum hvítum bómull-
artvinna upp úr skúffu í Singer saumavélinni og þræddi hann á litla nál.
Hann var búinn að koma þeim á bragðið eins og hann hafði ætlað sér.
Indíánarnir létu ekkert fram hjá sér fara af því sem hann gerði og sagði
þessi hvíti herramaður bæjarins, og á þessari stundu fannst þeim sem
hann væri sannur lærdómsmaður, þótt hann virtist reyndar vera á rangri
hillu í köllun sinni sem skraddari.
— Fallbyssan er mjög voldugt vopn, kannski aðeins minni en þessi
saumavél mín. Hún er ákaflega þung, gerð úr sterku jámi, og hún er á
tveimur hjólum svo hægt sé að hreyfa hana á milli staða. Kjafturinn á
henni er á stærð við þessa mynd af Meynni frá Santa Lucia og kúlan á
stærð við hausinn á honum Wilasco ...
Indíánamir hlógu að þessum samanburði: þeir þekktu hann vel leið-
toga sinn í rauða jakkanum.
TMM 1993:3
89