Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Síða 109

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Síða 109
breyst til mikilla muna. Þá var gert ráð fyrir tveim bindum til viðbótar. Losaraleg áætlunar- gerð af þessu tagi getur haft mjög skaðlegar aukaverkanir, sem ekki láta á sér standa varð- andi bókaflokinn um Skálholt. I öll bindin, sem komin eru, vantar nafna-, atriðisorða- og myndaskrár auk efnisútdráttar á erlendu máli. Allt er þetta þó óhjákvæmilegt í ritum af þessu tagi. Ef til vill var réttlætanlegt að hafa þann hátt á að birta efni þetta í öðm bindi fyrir verkið í heild, meðan aðeins var um tveggja binda verk að ræða. Eftir að bókaflokkurinn óx með ofan- greindum hætti, koma augljósir annmarkar hins vegar á daginn. Skrárnar liggja enn ekki fyrir og því er örðugt að átta sig á viðunandi hátt í bindunum þrem. Þá torveldar þessi aðferð notk- un hvers bindis um sig. Það er ekki augljóst, að sá, sem einkum hefur hug á að kynna sér til að mynda skrúða í Skálholti hafi endilega tök á að hafa bindið um Skálholtsstað við höndina. Loks væri mikill skaði, ef örlög þessa bókaflokks yrðu svipuð og svo margra annarra ritraða, er ráðist hefur verið í hér á landi, og ijórða bindið kæmi alls ekki út eða eftir langt hlé. Æskilegt er að bókaflokknum verði settir skýrari og afdrátt- arlausari rammar, þegar Skálholts-bindin liggja öll fyrir. Þar þarf meðal annars að sjá til þess, að allar nauðsynlegar skrár og erlendir efnisút- drættir fylgi hverju bindi. Þá mætti velta því fyrir sér, hvort ekki væri æskilegt að lengra verði gengið í úrvinnslu efnis, en gert er í sum- um hlutum annars og þriðja bindis Skálholts- bókanna. í staðinn mætti draga úr orðréttri birtingu heimilda af ólíkasta tagi og skapa verk- inu þar með heildstæðara, meitlaðra og læsi- legra yfirbragð. Eins og oft hefur verið bent á, skipar Skál- holtsstaður veglegan sess í sögu íslendinga langt út fyrir það, sem kalla má kirkjusögu þjóðarinnar. Þekking á Skálholti og þeirri sögu, sem þar hefur gerst, er því hluti af menningar- arfí okkar. Þessi skilningur kemur ljóslega fram í fyrstabindi verksins. I grein Kristjáns Eldjáms um rannsóknirnar 1954-1958, kemur fram, að fomleifagröfturinn var unninn í tengslum við umfangsmikið uppbyggingarstarf á staðnum, sem þá var í þann mund að hefjast, en hefur nú leitt til þess að á staðnum hefur risið ný dóm- kirkja, kirkjulegt menntasetur og nú á allra síð- ustu ámm verið endurreistur þar biskupsstóll. Þessi tengsl fomleifarannsókna og uppbygg- ingarstarfs koma og fram í því, að Sigurbjörn biskup skuli rita ávarp í upphafi fyrsta bindis, en hann var helsti forvígismaður þessa viðreisn- arstarfs. Um það leyti, sem rannsóknir hófust í Skálholti lét hann í ljós þá von, að þær myndu ekki aðeins bregða ljósi yfir liðna tíma heldur jafnframt hjálpa nútímamönnum að finna Skál- holt aftur og notfæra sér það til þjóðlegrar og trúarlegrar vakningar. Þrátt fyrir alla þá upp- byggingu, sem orðið hefur í Skálholti, kann nokkur vafi að leika á, hvort við höfum enn fundið Skálholt. Ef til vill mun bókaflokkurinn um Skálholtsstað og kirkjur hans verða til hjálp- ar í því efni og er þá vel. Hjalti Hugason Sovét ísland? Árni Snævarr og Valur Ingimundarson: Liðsmenn Moskvu. Almenna bókafélagið 1992. Samfara hruni Sovétríkjanna og þess þjóð- skipulags sem tíðkaðist víðast í A-Evrópu hefur eflst áhugi á rannsóknum á samtökum og ein- staklingum á Vesturlöndum, sem á einhvem hátt tengdust Sovétríkjunum. Þetta stafar m.a. af því að skjalasöfn hafa opnast og ýmsir atburðir fá á sig nýtt ljós. Fyrir síðustu jól sendi Almenna bókafélagið frá sér bók sem sver sig í þessa ætt. I inngangi segja höfundar markmiðið að rekja samskipti íslenskra stjórnmálasamtaka við alþjóðahreyf- ingu kommúnista. Þetta sé ekki aðeins saga mikilla stjórnmálaátaka, sem spunnist hafi af átrúnaði íslenskra manna á erlent stjómarfar, heldur ekki síður saga íslenskra manna sem áttu sér vonir um betra líf (11). Hér eru því veittar vonir um fróðlega og metnaðargjama úttekt. Bókin er tvískipt þannig að Ámi Snævarr skrifar fyrri hlutann (19-221) og kallar hann „Flokkurinn og fyrirmyndarríkin." Er þar fjall- að um samskipti íslenskra kommúnista og sós- íalista við erlenda flokka og ríki frá upphafi og til áttunda áratugarins. Valur Ingimundarson skrifar síðari hlutann (225-291), sem hann nefnir „Sigrar ungs lýðveldis." Er sá hluti miklu TMM 1993:3 107
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.