Tímarit Máls og menningar - 01.09.1993, Page 115
Erlíngur E. Halkiórsson Jjýddi.
GARGANTÚI og PANTAGRÚLL||
Franqois Rabelais
Gargantúi
og Pantagrúll
er eitt þekktasta
skáldverk sem ritað hefur
verið á franska tungu fyrr og síðar.
Þetta er flokkur fimm skemmtisagna eftir
munkinn. lækninn, luimoristann og mannvininn
Fran^ois Rabelais (H8-Í-1553). en fyrir þetta verk
hefur Rabelais löngum verið settur á stall með klassískum
höfundum á borð við Shakespeare, Dante og Cervantes. Hug-
tnvndaflugið og frásagnargleðin er slík að lesandinn sogast inn
í frásögnina og lendit' með persónunum í ótrúlegustu ævintýrum,
tekur |iátt í spaklegum vangaveltum um aðskiljanlegustu málefni
og skemmtir sér konunglega. Hann kynnist þar fjölda skrautlegra
persóna, m.a. risahjónunum Grandgussa og Gargamelu og syni
þeirra, átvaglinu Pantagrúl, raunum Panúrgs í kvennamálum og
ferðalögum hans til furðulegra staða. En að baki glettninni býr
þekking, viska og snörp ádeila höfundar sem var fjölfróðari en
flestir samtímamenn hans. Adeila hans á valdapot, mennta-
snobb, vanahugsun og helgislepju hverskonar kom illa
við kaunin á samtímamönnum hans, einkum valda-
mönnum kóngs og kirkju. Allar götur síðan hafa
menn skípst í tvö horn í afstöðunni til verka
Rabelais. Enda eru verk hans háskaleg
fyrir þá sem ekkert skopskyn
hafa. Ifyrir alla aðra
eru þau veisla.