Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 15
DYGGÐIRNAR OG ÍSLENDINGAR
Mjög sammála
Frekar sammála
Frekar ósammála
Mjög ósammála
Fólk var beðið um að taka afctöðu til setningarinnar: „Menntun er ekki eins mikilvæg og viljinn
til að gera það sem maður á að gera.“ 80% þeirra sem spurðir voru töldu þetta rétt.
fjölskyldu- og vinabönd töldu nær fjörutíu og sjö prósent góða heilsu mikil-
vægasta og í öðrum spurningum var hlutfall þeirra sem völdu heilsu, heil-
brigði og langlífi líka hátt.
Við höfum séð að könnunin bendir til þess að íslendingar reiði sig á eigin
dugnað og samheldni fjölskyldna og vina, en skeyti litlu um starfsffama og
menntun. Þeir virðast öruggir um að hægt sé að takast á við hvaða verkefni
sem er án sérstaks undirbúnings og hafa óbilandi trú á að þeir geti náð því
sem þeir ætla sér. En þrátt fyrir þessa áherslu á ættina og eigin dugnað virðast
þeir einnig vera mjög umburðarlyndir og virða skoðanir og rétt annarra.
Þannig segjast yfir áttatíu og fimm prósent viðurkenna alla hópa samfélags-
ins, jafnvelþótt þeir hafi ekki sömu sjónarmið. Yfir sjötíu prósent telja að það
eigi að vera svigrúm á íslandi fyrir öll trúarbrögð. Tæplega áttatíu prósent
vilja ógjarnan ná einhverju ff am ef það er á kostnað annarra, sami fjöldi telur
að þeir sem flytjist til íslands ffá öðrum löndum eigi rétt á að halda eigin sið-
um og venjum, og yfir níutíu prósent þeirra sem spurðir eru segjast reyna að
skilja ástæður fólks áður en þeir dæmi skoðanir þess. Þetta er í samræmi við
það að heiðarleiki, hreinskilni, jákvæðni og vinátta skuli vera þær dyggðir
sem íslendingar telja fremstar.
Mjög sammála
Frekar sammála
Frekar ósammála
Mjög ósammála
Fólk var beðið um að taka afetóðu til setningarinnar: „Þegar ég legg mat á það sem fólk gerir vegur
hugurinn að baki þyngra en útkoman.“ Meira en 80% sögðu þetta eiga við sig.
Séu niðurstöður könnunar okkar skoðaðar nánar kemur þó í ljós að
nokkur munur er á viðhorfum fólks effir því á hvaða aldri það er, hvaða tekj-
ur það hefur og hvaða starfsstétt það tilheyrir. Furðu lítill munur virðist hins
TMM 2000:2
www.malogmenning.is
13