Dagrenning - 01.12.1956, Qupperneq 12
------------------------------------------------------------------------>
margir sem góða og gilda afsökun, þó að tæpast verði þetta talin stórbrotin
afstaða slíks stórveldis sem Bandaríkin nú eru orðin.
En þessi skýring er hrein blekking Það eru allt önnur öfl og allt önnur
sjónarmið, sem ráðið hafa afstöðu Bandaríkjastjórnar til Súezmálsins allt
frá öndverðu og verður að því vikið síðar í þessari grein.
Ranglætisaðgerðir og undirróður.
Áður en hin eiginlega Súezdeila hófst hafði einni þjóð — ísrael — verið
með valdi varnað að sigla um Súezskurðinn, og Bretar, Bandaríkjamenn
og Frakkar höfðu látið það freklega brot viðgangast á alþjóðasamningi,
sem þeir allir báru ábyrgð á að væri haldinn. Ekki létu Sameinuðu þjóð-
irnar heldur það mál til sín taka. Eftir þjóðnýtingu skurðarins var út séð
um að nokkur bót fengizt á þessu ráðin, og nú þegar engin vörn var lengur
á þessum slóðum, en sívaxandi fjandskapur milli fsraels og Arabaríkjanna,
hlaut að því að draga, fyrr eða síðar, að til átaka kæmi milli Israelsmanna
og Egipta. Mundi þá þeim þjóðum, sem veittu ísrael, að sjálfsögðu einnig
meinuð sigling um skurðinn. Voru Frakkar þá í mestri hættu, því að
þeir, einir allra vestrænna þjóða, þorðu að selja fsrael vopn og veita þeim
opinbera aðstoð gegn Arabaríkjunum. Við þetta bættist svo hinn sívaxandi
ágieiningur milli Frakka og Egipta tit af óeirðunum í Alsír, sent allar
voru skipulagðar frá Egiptalandi.
Tveir atburðir, sem gerðust nokkru fyrir innrás ísraelsmanna í Egipta-
land, urðu til þess að fletta ofan af því laumuspili, sem Nasser lék í lönd-
um Frakka í Norður-Afríku. Annar var sá, að frönsk herskip náðu vopna-
skútu, sem send hafði verið frá Egiptalandi og átti að flytja vopnafarm
til uppreisnarmanna í Alsír. Það varð sannað, að egipzka stjórnin ltafði
látið skipa út vopnunum og þau áttu að fara til uppreisnarmannanna.
Vopnin voru tékknesk. Hinn atburðurinn var, að franskar hernaðarflug-
vélar neyddu flugvél, sem var að koma frá Egiptalandi, til að lenda á
yfirráðasvæði Frakka og voru í flugvél þessari fjórir af aðalleiðtogum
uppreisnarmanna í Alsír. Þeir voru allir handteknir og í fórurn þeirra
fundust gögn, sem sönnuðu ótvírætt, að allar áætlanir um uppreisn í Alsír
voru gerðar í Egiptalandi og stjórn Nassers stóð að þeim, en hinir inn-
lendu uppreisnarforingjar voru aðeins verkfæri í liendi alþjóðakommún-
ismans og egipzku stjórnarinnar. En ekkert af þessu fékk breytt viðhorfi
Bandaríkjamanna. Þeir héldu áfram beinum og óbeinum stuðningi við
Nasser og hirtu ekkert um það öngþveiti, sem var að verða við Miðjarðar-
haf. Þeir notuðu Sameinuðu þjóðirnar til þess að niðurlægja Frakka og
Breta og studdust þar við atkvæði Sovétríkjanna og leppríkja þeirra.
V-——— ------------------------------------------------------------------>
10 DAGRENNING