Dagrenning - 01.12.1956, Blaðsíða 46

Dagrenning - 01.12.1956, Blaðsíða 46
þetta opnar óvininum dyrnar að nýju. Afbrýðisemi Sáls og óhlýðni opnaði ill- um anda leið inn í líkama hans (I. Sam. 1(5, 14—15). Varpaðu þessu öllu frá þér, kristni vinur. Líkamlegir sigrar sigla í kjölfar þeirra andlegu. Epafródítus var þjónn Guðs og vann af miklum dugnaði fyrir málefni Krists. Samt var hann að dauða kominn sökum ofreynslu, þótt hann væri að þjóna því göfugasta allra málefna, að framkvæma boð Guðs. Páll hafði lækningagáfu, en hún nægði ekki til þess að vinna skjót- an bug á þeim illkynjaða sjúkdómi, sem laust þann heilaga rnann. Vér verðum að gæta líkama vors, hvort sem vér störfum í þjónustu Guðs eða veraldlegra málefna. Þegar Páll talar um Epafró- dítus, þjón Guðs, segir hann: „Því að vegna verks Drottins var liann að dauða kominn, þar eð hann lagði líf sitt í hættu, til þess að bæta upp það, sem brast á hjálpsemi yðar mér til handa“ (Fil. 2, 30). Margur presturinn og prestskonan hefur veikzt af ofreynslu og áhyggjum í starfinu fyrir Krist. Ef til vill er hægt að afkasta meiru með því að helga starf- inu hug sinn allan, meðan starfað er, en hvíla sig svo stuttan tíma, til þess að endurnæra líkamann. Lækningagáfan mun reka sjúkdómana út og eðlileg starfsemi líkamans gefur honum þrótt- inn að nýju. En þegar vér höfum eytt öllum líkamskröftum vorum eða dreift jreim, er líkaminn orðinn óhæfur til samstarfs við anda Guðs. Standið gegn áleitni óvinarins. Á sama hátt og Satan reynir að inn- ræta oss illar hugsanir, og sigur vor er fólginn í því að þekkja hverrar ættar þær eru og standa gegn þeim, þannig mun hann einnig reyna að læða inn í hug vorn ímyndun um veikindi, í formi einhverra sjúkdómseinkenna. Ef vér vit- um hvaðan þetta er upprunnið, mun- um vér geta staðið gegn því og vísað því á bug. En vitum vér það ekki, kann svo að fara, að vér erfum það, sem átti ekki að falla í vorn hlut, og veikjumst aftur. Guð ætlar oss betra hlutskipti en sífelldar lækningar. Það er ekki vilji Guðs, að kristinn maður þurfi stöðugt að vera að leita sér lækninga. Sumir hafa verið læknaðir ótal sinnum og veikjast alltaf aftur. Þetta er ekki Guði til dýrðar, fremur en þegar maður, sem frelsast brýtur af sér náðina hvað eftir annað og þarf að fá uppreisn æ ofan í æ. Vér munum að í lækningasáttmálanum við ísraelsmenn lýsti Guð því yfir, að ef þeir hlýddu raust Drottins, myndi hann engan þann sjúkdóm á þá leggja, sem hann lagði á Egypta. Hann hét þeim, að „uppræta sjúkdóma meðal þeirra.“ Jóhannes, hinn elskaði, sagði: „Ég bið þess, minn elskaði, að þér vegni vel í öllum hlutum og þú sért heill heilsu, eins og sálu þinni vegnar vel.“ Þetta er vilji Guðs. Hann skapaði manninn í sinni mynd og gaf honum vald yfir jörðinni. Hann sagði honum að gjöra hana sér undir- gefna og drottna yfir lífi hennar. í því felst áreiðanlega vald yfir þeim illu lífs- gerfum, sem djöfullinn hefur sent til höfuðs mannkyninu, í mynd sjúkdóma. Látum oss rísa upp í nafni Drottins vors, Jesú Krists, og vinna sigur. Af- neitum Satan og öllum hans áhrifum. Kirkjan er líkami Krists og því vissulega ekki friðland fyrir sjúkdóma óvinarins. Krefjist arfleifðar yðar í nafni Drottins. „Sá sem sonurinn veitir frelsi, er frjáls." 44 dagrenning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.