Dagrenning - 01.12.1956, Side 48
þyrfti að skapa í augnatóftum hans, en
hann hafði verið blindur frá fæðingu.
Þess ber að minnast, að maðurinn var
skapaður af dufti jarðarinnar. Skapandi
trú er vissulega alls megnug.
Eðlileg framför er nauðsynleg.
3. Guðleg lækning kernur ekki í stað
eðlilegs þroska. Tökum sem dæmi
niann, sem ekkert hefur þroskazt andlega
fram á tvítugsaldur og er enn á sama
vitsmunastigi og tveggja ára barn. Und-
ir venjulegum kringumstæðum mundi
guðleg lækning ekki breyta honurn svo,
að hann fengi á svipstundu vitsmuna-
þroska tvítugs maftns. Ef allt géngi að
óskum, þyrfti a. m. k. þau 18 ár, sem
tapast höfðu, til þess að vinna það upp,
því hver maður verður að þroskast and-
lega ár frá ári. En vafalaust eru til ein-
hver dæmi, þar sem eingöngu hefur ver-
ið að ræða um yfirráð ills anda, að lækn-
ing hafi tekizt strax og sjúklingurinn
komst í eðlilegt ástand, ef vald Satans
hefur verið brotið á bak aftur. En þá
hefur heilinn líka verið búinn að ná
fullum þroska að mestu leyti.
4. Hin guðlega lækningagáfa dregui
á engan hátt úr þeirri nauðsyn, að sjúkl-
ingurinn trúi sjálfur. Margir eru trú-
lausir, eða því sem næst, en sökum þess,
að þeir sjá aðra læknast, koma þeir til
þess að láta biðja fyrir sér, með einhverri
hjátrúarblandinni von um að þeir
kunni að hafa eitthvert gagn af því. Páll
var vissulega gæddur lækningagáfu, en
hann sagði ekki við lamaða manninn í
Lýstru: „Stattu uppréttur á fætur þína!“
fyrr en hann sá að maðurinn hafði trú
til þess að geta orðið heill. (Post. 14,
8-10).
„Trúin kemur af boðuninni, en boð-
unin byggist á orði Guðs.“ Þess vegna
er kenning orðsins nauðsynleg til þess
að efla trú þeirra, sem leita guðlegrar
lækningar. Stundum heldur fólk að það
sé nóg, að einhver sé gæddur lækninga-
gáfu, en sá sjúki þurfi ekkert að búa sig
undir lækninguna. Nálega hvert sinn,
sem Jesús læknaði, veitti hann þeim
sjúka fyrst þá fræðslu, sem við átti. Flesta
þeirra, sem annaðhvort vilja ekki eða
geta ekki notfært sér hina nauðsynlegu
fræðslu, er erfitt að lækna.
Vígl. Möller þýddi.
46 DAGRENNING