Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Side 35

Bókasafnið - 01.06.2014, Side 35
Bókasafnið 38. árg. 2014 35 bókasafnsheimsókna og einkunna ﴾Stone og Ramsden, 2013, bls. 546; 554﴿. Þessi rannsókn styður fyrri niðurstöðu rannsóknar­ innar í Huddersfield og hér voru marktektarpróf fram­ kvæmd. Þó skal þess getið að þrátt fyrir að sýna marktækan mun á einkunnum nemenda eftir bókasafns­ notkun ﴾það er útlánum og rafrænni notkun﴿ er ekki hægt að fullyrða um orsakasamband og einnig er rétt að taka fram að þrátt fyrir marktækan mun á bókasafns­ notkun er munurinn ekki mikill. Rannsókn í bókasafni Menntavísindasviðs Hvernig skyldi þessu vera háttað á Menntavísinda­ sviði? Eins og fram hefur komið er ekki hægt að mæla rafræna notkun nemenda á séráskriftum HÍ og Landsað­ gangs og bókasafnsheimsóknir nemanda er einnig erfitt að mæla. En unnt er að kanna fjölda útlána og hvort tengsl séu á milli fjölda útlána og einkunna. Þær rannsóknarspurningar sem leitast er við að svara í þessari rannsókn eru: 1. Hversu hátt hlutfall nemenda fékk enga bók að láni skólaárið 2012–13? 2. Er munur á útlánum eftir deildum ﴾Kennara­ deild, Uppeldis­ og menntunarfræðideild og Íþrótta­, tómstunda­ og þroskaþjálfadeild﴿? 3. Er munur á útlánum eftir námsstigi ﴾grunnnám, framhaldsnám﴿? 4. Eru tengsl á milli fjölda útlána og lokaeinkunna? Aðferð Tölfræðileg úrvinnsla fór fram í Excel og tölfræðifor­ ritinu SPSS. Lýsandi tölfræði var reiknuð fyrir allar breyt­ ur og fylgni skoðuð. Marktektarprófið Spearman‘s rho var notað til að kanna hvort marktæk fylgni væri milli út­ lána og einkunna þar sem dreifing útlána var skekkt og breytan útlán er raðkvarði. Miðað var við tvíhlíða próf og 95% öryggismörk. Þátttakendur Til að svara spurningum 1–3 eru þátttakendur allir nemendur Menntavísindasviðs, ﴾fyrir utan doktorsnema﴿, skólaárið 2012–2013 samtals 2.171. Til að svara spurningu 4, „Eru tengsl milli fjölda út­ lána og einkunna?“, voru þátttakendur allir grunnnemar sem útskrifuðust í júní 2013 samtals 224, undanskildir voru 38 nemar í diplómanámi. Framkvæmd Eftir að tilskilin heimild var fengin frá Persónuvernd var útlánatölfræði fyrir skólaárið keyrð í bókasafnskerfinu Aleph fyrir hvern og einn nemanda ásamt upplýsingum um deild ﴾Kennaradeild, Íþrótta­ tómstunda­ og þroska­ þjálfadeild og Uppeldis­ og menntunarfræðideild﴿ og hvort viðkomandi var í grunnnámi, diplómanámi eða meistaranámi. Upplýsingarnar voru afritaðar yfir í Excel þar sem lýsandi tölfræði var skoðuð. Meðaleinkunn grunnnema við brautskráningu í júní 2013 var fengin hjá nemendaskrá ﴾til að svara spurningu 4﴿ og var breytunni einkunn bætt við í Excel hjá út­ skriftarnemum sem voru síðan merktir hlaupandi númer­ um frá einum áður en gögnin voru færð yfir í SPSS þar sem unnið var með þær. Deildirnar eru misstórar og er því best að skoða út­ lánin í prósentum til að bera þau saman. Ákveðið var að flokka útlánin í átta flokka, ﴾0 útlán, 1–5 útlán, 5–10 útlán, 10–15 útlán, 15–20 útlán, 20–25 útlán, 25–30 útlán, 30–35 útlán og 35+ útlán﴿, eins og gert var í Huddersfield rann­ sókninni að undanskildum endurýjunum. Niðurstöður Heildarútlán þessara nema skólaárið 2012–2013 voru samtals 11.544. Af 2.171 nemanda voru 1.066 nemar ﴾48%﴿ ekki með nein útlán á árinu. Fjöldi útlána var mjög mismunandi en sá nemandi sem hafði flest útlánin var í framhaldsnámi í Uppeldis­ og menntunarfræði og fékk að láni alls 108 bækur á árinu. Grunnnemar í Uppeldis­ og menntunarfræði höfðu fengið að láni átta bækur að meðaltali á árinu sem var hæsta meðaltalið. Grunnnem­ ar í Kennaradeild höfðu hins vegar fengið að meðaltali fimm bækur að láni á árinu en voru með hæsta miðgildið 10, það er helmingur nemanna hafði fengið fleiri bækur en 10 að láni á árinu. Framhaldsnemar í Íþrótta­ tóm­ stunda­ og þroskaþjálfadeild voru með lægsta meðaltal­ ið, eða eina bók á árinu. Þegar skiptingin eftir deildum er skoðuð ﴾sjá mynd 1﴿ er ljóst að 25% nema í grunnnámi í Uppeldis­ og menntunarfræði höfðu aldrei fengið bók að láni, en í öðrum deildum er hlutfallið mun hærra eða rúmlega 40%. Af þeim sem voru með 10 útlán eða fleiri á árinu höfðu nemar í grunnnámi í Íþrótta­ tómstunda­ og þroskaþjálfafræði fengið minnst lánað. Í framhaldsnámi hækkar hlutfall þeirra sem fengu ekkert lánað og fer upp í 74% hjá Íþrótta­ tómstunda­ og þroskaþjálfafræði, en er rúm 50% hjá Uppeldis­ og menntunarfræðideild og Kennaradeild ﴾sjá mynd 2﴿. Út­ lánin eru annars frekar svipuð milli deilda, en það sem er mest sláandi er hversu hátt hlutfall meistaranema fékk

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.