Bókasafnið - 01.06.2014, Page 49
Bókasafnið 38. árg. 2014
49
mennt fannst þátttakendum námskeiðin vera gagnleg en
sumum fannst þó ókostur að verið væri að kynna mörg
gagnasöfn í sama námskeiðinu því þá vildi kennslan á
Gegni fara fyrir ofan garð og neðan. Margir töldu að það
hefði gagnast þeim betur að fá hagnýtari kennslu í formi
verkefna fremur en sýnikennslu. Flestum þótti best að
læra á Gegni í gegnum verkefni í náminu og með því að
nota hann mikið. Leiðsögn væri þó nauðsynleg til að
geta skilið leitarniðurstöður og ýmis hugtök í bókasafns
kerfinu og vita um valmöguleikana. Almennt virtust nem
arnir ekki hafa sótt önnur námskeið í bókasafninu.
Að nota Gegni
Flestir viðmælenda höfðu nokkuð góða hugmynd um
hlutverk og innihald gagnasafnsins og gerðu skýran
greinarmun á Gegni og öðrum gagnasöfnum. Það virtist
ekki vefjast fyrir þeim að Gegnir væri sameiginleg skrá
margra bókasafna yfir íslenskt og erlent efni á ýmsu
formi í eigu þeirra, en hugtakið samskrá var þátttakend
um þó ekki tamt. Einnig þekktu margir vel og notfærðu
sér helstu leitarmöguleikana í Gegni og áttu auðvelt með
að lýsa því hvernig þeir notuðu þá. Sumir töldu sig þó
nota mest einfalda leitarmöguleika og kváðust ekki velta
valmöguleikunum mikið fyrir sér. Á máli tveggja nem
enda mátti skilja að notkun þeirra væri á einhvern hátt
venjubundin. Margir notuðu Gegni til að leita almennt
eftir efni og fá yfirsýn yfir efnissviðið og byrjuðu þá upp
lýsingaleitina þar. Orðaleit og skimun eftir efni virtust
vera algengar leitaraðferðir en tveir nemendur kváðust
þó nota Gegni nær eingöngu til að leita að ákveðnum titli
eða höfundi bókar. Einn nemandi notfærði sér markvisst
efnisorð og flokkstölur til þess að finna skylt efni á sínu
fræðasviði og hafði honum verið leiðbeint með þetta af
kennara sínum.
Notkun nemendanna á Gegni tengdist mest öflun
upplýsinga og heimilda vegna verkefna og ritgerða.
Notkunin virtist aukast eða verða markvissari eftir því
sem leið á námið hjá flestum og þeir sem voru að skrifa
lokaritgerðir notuðu hann jafnan mikið. Notkun á
gagnasöfnum tengdist að nokkru leyti námsgrein og því
efni sem nemendurnir höfðu þörf fyrir að nota í náminu.
Þeir sem þurftu aðallega á erlendum fræðigreinum að
halda í sínu námi leituðu að þeim í viðeigandi erlendum
gagnasöfnum og notuðu þau meira en Gegni. Fólkið leit
aði þá kannski ekki í Gegni nema það hefði beina tilvísun
í einhverja heimild til þess að athuga hvort hún væri til í
einhverju bókasafni. Aðrir virtust nota Gegni og erlendu
gagnasöfnin nokkuð jöfnum höndum þótt tveir nemendur
segðust aðallega nota Gegni og kváðust hafa litla þörf
fyrir erlent fræðiefni í sínu námi. Meiri hluti þátttakenda
﴾sex nemendur﴿ taldi erfiðara að læra á rafrænu
gagnasöfnin eða nota þau en Gegni en tveimur þótti það
álíka.
Reynslan afGegni
Þátttakendur virtust hafa mjög jákvæða reynslu af
Gegni. Lýstu margir Gegni sem hentugu og áreiðanlegu
gagnasafni til að finna heimildir sem óhætt væri að
treysta og vitna til. Nemarnir töldu samskrána auðvelda
sér upplýsingaöflunina og þótti einfalt að átta sig á hvar
ritin væru staðsett, hvort þau væru í útláni og hvenær
þau væru væntanleg. Á nokkrum mátti skilja að þeim
þætti ekki endilega tímasparnaður að leita mikið heim
ilda á Netinu, heldur þvert á móti þyrfti að eyða lengri
tíma í leitir þar til þess að finna góðar og áreiðanlegar
heimildir. Þegar talið barst að Google leitarvélinni sér
staklega sögðu margir að þegar þeir hefðu alls enga eða
mjög óljósa hugmynd um efnið byrjuðu þeir leitina þar í
þeirri von að finna upplýsingar sem gagnast gætu við að
leita í Gegni eða öðrum gagnasöfnum. Einn nemandi
sagðist stundum gúggla tímaritsgreinar því það væri
styttri leið en að fara í gegnum gagnasöfnin og annar
sagðist stundum þurfa að nota efni í sínu námi sem ein
faldast væri að gúggla þar sem það lægi oftast á vef
ýmissa stofnana og væri sjaldan að finna í Gegni.
Það var þó misjafnt hvort fólk hefði reynslu af að not
færa sér alla valmöguleikana í bókasafnskerfinu eða
þekkti alla möguleika í boði. Það var nokkuð algengt að
fólk hefði ekki tekið eftir ýmsum valmöguleikum. Til
dæmis hafði enginn tekið eftir hnappnum Leitir.is í Gegni
eða prófað að nota nýja leitarvefinn. Höfðu þátttakendur
enga eða óljósa hugmynd um leitarvefinn. Einnig vissu
fáir að rafrænt efni væri aðgengilegt í gegnum Gegni.
Einungis þrír nemendur kváðust vita af þessu og tveir
þeirra virtust nýta sér það að einhverju marki. Aðeins
fjórir sögðust nýta sér innskráningu til að endurnýja útlán
og tveir þeirra nýttu sér einnig að taka frá rit eða panta
millisafnalán. Tveir þátttakenda höfðu ekki tekið eftir
innskráningarglugganum og vissu ekki hvaða þjónusta
fengist með því að skrá sig inn. Tveir vissu um þennan
möguleika en höfðu aldrei nýtt sér hann. Nokkrir bentu á
að þeir hefðu ekki vitað til hvers þetta væri gert nema af
því að þeim hafði verið sagt frá því. Það ríkti þó almenn
ánægja með þessa þjónustu og fannst fólki það spara
tíma og fyrirhöfn að geta gert þessa hluti sjálft. Nemarnir
virtust kunna vel að meta það sem sparaði þeim tíma við
upplýsingaöflunina og nefndu tveir að þeir yrðu óþolin
móðir eða pirraðir ef þeir þyrftu að eyða miklum tíma í að
leita eða finna út úr hlutunum. Þrátt fyrir það taldi fólk sig
yfirleitt ekki þurfa að leita aðstoðar starfsfólks bóka