Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Page 73

Bókasafnið - 01.06.2014, Page 73
Útdráttur Dagana 9.­13. september 2013 fóru Hallur Guð­ mundsson og Sigrún Guðnadóttir frá Bókasafni Kópa­ vogs til Kölnar í þeim tilgangi að kynna sér útlán á rafbókum og viðskiptahugmyndina á bak við þau. Ferðin var styrkt af Leonardo menntaáætlun Evrópusam­ bandsins. Á vikutíma kynntust þau kostum og göllum rafbókaútlána sem og þeim gildrum sem geta staðið í veginum fyrir því að hefja slíkt ferli hér á landi. Niður­ staðan varð sú að heppilegast þætti að Landskerfi Bókasafna hefði yfirumsjón með innleiðingu útlána raf­ bóka á Íslandi enda sér það fyrirtæki um Gegni og rök­ réttast er að bein tenging sé á milli þessara þátta útlánastarfsemi. Safnið Aðalsafnið í Köln hefur að geyma margs konar safndeildir, má þar nefna stóra barnadeild, skjala­ og sýningarsvæði til minningar um rithöfundinn Heinrich Böll, bókasafn rithöfunda frá Köln, blindrabókasafn og safn bókmennta um sögu þýskra gyðinga, sem var opn­ að árið 1959. Ellefu útibú eru rekin frá aðalsafninu ásamt einum bókabíl, „Minibib“, „Krimmasjálfsala“ og rafbókavef þar sem hægt er að fá lánaðar rafbækur allan sólarhringinn. Mesta aukning í útlánum hefur verið á rafbókum. Frá árinu 2012 hefur verið hægt að skila gögnum í aðalsafn­ ið allan sólarhringinn. Svokölluð RFID tækni var tekin í gagnið til að tryggja sem mestan hraða í útlánum. Hún virkar þannig að bókasafnsskírteinið er sett í þar til gerða afgreiðsluvél og lykilorð slegið inn, því næst getur lánþeginn fengið lánað eða skilað bunka af bókum með einu handtaki. Árið 2012 komu í fyrsta skiptið yfir 2 milljónir gesta á safnið, eða 2.053.450, en daglega koma um 8.250 safngestir. Í aðalsafninu og tengdum rekstrareiningum eru 148.9 stöðugildi sem 196 manns skipta með sér ásamt 87 sjálfboðaliðum. Árgjaldið í safnið fyrir fullorðna er 38 evrur ﴾á geng­ inu 164 kr. í september 2013 eru það um það bil. 6.200 krónur﴿ og var það hækkað talsvert frá 2012 þar sem tekin var sú ákvörðun að hætta að taka gjald fyrir safn­ efni eins og DVD diska. En til að koma á móts við lán­ þega gildir skírteinið í 13 mánuði. Hægt er að fá skírteini sem gilda í þrjá og sex mánuði. Líkt og hérlendis eru skírteini fyrir börn undir 18 ára aldri ókeypis. Á safninu er boðið upp á safnkynningar fyrir grunn­ og menntaskólanema. Kynningar fara að miklu leyti fram í formi verkefna sem nemendur vinna á safninu og þyngjast eftir því sem þeir eldast. Kynningar af þessu tagi eru nemendum mjög mikilvægar þar sem ekki tíðkast að vera með bókasöfn í skólum í Þýskalandi. Mikill fjöldi erlendra gesta heimsækir almennings­ bókasafnið í Köln ár hvert til að fræðast enda er safnið í fremstu röð hvað varðar nýjungar og tækni. Þegar nú­ verandi forstöðumaður, Dr. Hannalore Vogt tók við Sigrún Guðnadóttir er forstöðumaður Lindasafns, útibús Bókasafns Kópavogs. Hún er með B.A. í Upplýsingafræði með Þjóðfræði sem aukagrein og M.A. í Hagnýtri menningarmiðlun. Til Kölnar Hallur Guðmundsson er bókavörður, tónlistarmaður og áhugamaður um útlán rafbóka. Sigrún Guðnadóttir og Hallur Guðmundsson Mynd 1. Aðalsafnið í Köln

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.