Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Side 61
FÖSTUDAGUR 17. september 2010 SVIÐSLJÓS 61
Nú klæðum við áleggið okkar í gull
...því það á það svo sannarlega skilið
KYNLÍFSDÚKKAN KIM
Nú getur þú eignast þína eigin Kardashian-systur:
F yrirsætan og athafna-konan Kim Kardashian er fyrir löngu orðin eitt af kyntáknum Banda-
ríkjanna og ímynd allra þeirra
kvenna sem vilja vera með línur.
Nú er svo komið að Pipedream
Products, fyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í kynlífsdúkkum, ætlar að
gera eina sem líkist Kim. Á hún að
heita Kinky Kim Filthy Love Doll.
Pipedream-fyrirtækið hefur fram-
leitt fjölmargar kynlífsdúkkur sem
eiga að vera Hollywood-stjörn-
ur, til dæmis er ekki langt síðan
dúkka sem líkist Lindsay Lohan
var framleidd. Hvort Kim Karda-
shian líti á þetta sem heiður eða
ekki verður að koma í ljós.
UPPBLÁSIN Það þarf
nokkuð mikið loft til að blása
upp þennan þrýstna líkama.
FURÐULEGUR Í
DULARGERVI
M el Gibson hefur verið mikið í umræðunni eftir að fyrrverandi eiginkona hans, Oksana, sakaði hann um að hafa beitt sig ofbeldi. Hún sendi frá sér upptökur af samtölum sínum við Mel sem vægast sagt komu illa út fyrir karlinn. Það er því ekkert skrýtið að Mel vilji láta lítið fyrir sér fara þessa dagana en það verður þó að segjast að þetta dulargervi sem sést hér á myndunum er svolítið kjánalegt. Það sást
sem sagt til Mels með gervinef, grátt yfirvaraskegg og svört lúðaleg gleraugu koma út úr skrifstofubyggingu sinni og
hefur hann væntanlega verið að reyna að plata papparassana sem elta hann hvert fótmál.
Hegðun Mels er þó ekki beint til þess fallin að draga athyglina frá honum því eftir að hafa sest upp í bílinn og
keyrt dágóða stund með snápana á hælunum stöðvaði hann bílinn, steig út án dulargervis og öskraði á blaða-
mennina: „Hvað, hafið þið ekkert betra að gera?“ Þegar einn ljómyndaranna spurði hvort hann hefði ekkert að
segja, svaraði hann: „Ekki við þig,“ og bætti síðan við: „Hvernig finnst þér að þefa af annarra manna þvotti?“ Skap-
bráður hann Mel.
FURÐULEGUR Með gervinef
og grátt gerviskegg.
ÖSKRAR Á LJÓMYNDARANA Mel
virðist hafað tapað glórunni.
HRINGUR OG
TILNEFNING
Modern family-stjarna trúlofuð:
Barmgóða kólumbíska gam-anleikkonan Sofia Verg-ara brosti hringinn á Emmy-verðlaunahátíðinni
sem fram fór fyrir tveimur vikum.
Sofia er almennt mjög hress og lífs-
glöð en það var ekki bara vegna þess
og þeirrar staðreyndar að hún var
tilnefnd til Emmy-verðlauna að hún
var svo kát. Á meðan hún var að gera
sig klára fyrir hátíðina bað kærasti
hennar, þingmaðurinn fyrrverandi
Nick Loeb, hana um að giftast sér.
Sofia sagði já og var hún því bæði
nýtrúlofuð og á leið á Emmy-hátíð-
ina þegar hún var mynduð seinna
um kvöldið. Ekki furða að hún brosti
svo mikið.
HAMINGJUSÖM Sofia var tilnefnd
til Emmy-verðlauna og fékk trúlofun-
arhring.