Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 67
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 67
h r i n g b o r ð s u m r æ ð u r f i m m k v e n n ah r i n g b o r ð s u m r æ ð u r
Mjög mikil niðursveifla skekur nú þjóðfélagið. Ef þið ættuð að
gefa stjórnendum eitt gott ráð í viðskiptum, hvert yrði það?
Áslaug: Góður stjórnandi þarf að hafa góðan áttavita. Til þess að vita
hvernig landið liggur og átta sig jafnt á ytri og innri aðstæðum. Það
þarf alltaf að bregðast við aðstæðum, hvort sem er um að ræða upp-
sveiflu eða niðursveiflu, skera niður eða bæta í reksturinn. Það reynir
á stjórnendur því núna erum við í öldudal.
Kristín: Nú skiptir öllu að hlúa að rekstrinum og öllu sínu fólki. Ég
tel að lykilatriði hjá öllum stjórnendum sé rétta starfsfólkið. Viðskipti
eru fólk og það er gífurlega mikilvægt að ráða rétta fólkið.
Auður: Ég tek undir það með Kristínu. Mannlegu samskiptin skipta
gríðarlega miklu máli, það er mikilvægt að vera rétt mannaður, þ.e.
að hafa gott starfsfólk í öllum lykilstöðum. Heiðarleika og traust
í stjórnun er alltaf mikilvægt að sýna. En þegar mikil niðursveifla
skekur þjóðfélagið, þá skiptir öllu máli að stjórnendur bregðist hratt
og örugglega við aðstæðum.
Ingunn: Það sem hefur verið að gerast er ekki nokkuð sem kom í ljós
í vikunni sem leið, það höfðu verið teikn á lofti síðustu mánuði. Mik-
ilvægt er að hafa sýnina í lagi og gera ráð fyrir innri og ytri aðstæðum.
Ef það hefði verið haft að leiðarljósi hefðu mörg fyrirtæki sloppið við
mikinn skell.
Ragnhildur: Gott fólk er lykilatriði. Við hjá Promens erum með
63 verksmiðjur og þegar við skoðum hverjar skara fram úr kemur í
ljós að það eru þær verksmiðjur sem hafa bestu stjórnendurna. Það
gerist ekkert nema hafa gott fólk. Fólk sem þorir að taka af skarið og
framkvæmir.
almennt um stjórnun
Frá vinstri; Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, Ingunn Wernersdóttir, forstjóri Inn-fjárfestinga, Auður Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri sölu- og þjónustusviðs VÍS, Áslaug Pálsdóttir, eigandi ÁP-almannatengsla og Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens.