Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 177
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 177
t e n G s l a n e t h e r d í s a r Þ o r G e i r s d ó t t u r
d
r. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor er fjögurra barna móðir,
fyrrum ritstjóri og útgefandi, virk í alþjóðlegu samstarfi
sérfræðinga á sviði mannréttinda og stjórnskipunar og
varaforseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga. Hún er líka
leiðtogi, hugsjónakona og fræðimaður. Herdís ræddi við
blaðamann Frjálsrar verslunar og veitti innsýn í ráðstefnuna Tengsla-
net IV – völd til kvenna, sem fór fram í fjórða sinn á Bifröst í lok maí.
Þátttakendur voru hátt í 500 konur og er ráðstefnan nú orðin ein sú
stærsta sem haldin er í íslensku atvinnulífi.
„Tengslanets-ráðstefnurnar eru tækifæri til þess að efla samstöðu
kvenna og skapa vettvang fyrir frjóar umræður sem skila einhverju út
í samfélagið,“ segir Herdís.
Hvernig kom Tengslanetið til?
„Þegar ég hóf störf við lagadeildina á Bifröst langaði mig til að halda
ráðstefnu á sviði jafnréttismála, enda verið virk á þeim vettvangi í
starfi mínu fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Mér fannst
að ráðstefna af þessu tagi ætti erindi við fleiri en lögfræðinga, því
konur alls staðar að ættu að koma að umfjöllun um jafnréttismál, sem
yrði til þess að efla þær. Ég ákvað því að nota skírskotunina Tengsla-
net - völd til kvenna,“ segir Herdís.
Hún fékk lykilfyrirlesara að utan, en íslenskar konur voru
burðarásinn í framsögum og umræðum. „Fyrir íslenskar konur er
það miklu meiri efling að hittast, tengjast og tala saman út frá sínum
veruleika, þótt vissulega séu vandamálin í okkar heimshluta alls staðar
þau sömu: Að samræma fjölskylduna og þátttöku á vinnumarkaði,
kynbundinn launamunur, aðgengi að störfum og hvernig karlar
útiloka konur frá miðstöðvum valdsins. Lykillinn að árangri liggur þó
ekki hjá körlum, hann liggur hjá okkur sjálfum. Framtíðin er í okkar
höndum! Það kemur enginn og sækir okkur, eða býður okkur eitt né
neitt. Við náum eingöngu árangri með samstöðu.“
Við framkvæmd fyrstu ráðstefnunnar ákvað hún að nýta nátt-
úru Borgarfjarðar. „Það er skemmtilegt samspil að virkja þennan
kraft í náttúrunni og kraft kvennanna, að koma kvenorkunni inn í
meginfarveginn,“ segir hún. Ráðstefnan hófst með fjallgöngu upp á
Grábrók og snæddur var kvöldverður í Paradísarlaut nálægt fossinum
Glanna. Herdís segist hafa notað sömu uppskrift og við að búa til
tímarit - að hafa sýn yfir heildarútlitið, blanda saman hægri konum,
vinstri konum, ungum konum og eldri, til að ná dýnamík í dag-
skrána. „Þessi fyrsta ráðstefna var þannig heilmikill sigur og þangað
komu 160 konur,“ segir Herdís.
Gefið af sér
Tengslanetið er sköpunarverk Herdísar, sem hefur frá upphafi
ákveðið dagskrá, fyrirlesara, þemu og skipulagt umgjörð ráðstefn-
unnar. Við framkvæmdina hefur hún notið dyggrar aðstoðar starfs-
fólks og nemenda skólans. „Á Bifröst er rekið fínasta veitingahús og
sá matreiðslumeistarinn um veitingarnar, nemandi um skreytingar og
fyrrum nemandi minn aðstoðaði við undirbúninginn auk þess sem
annað starfsfólk og nemendur leggja gjörva hönd á plóginn. Þar að
auki hafa sérlega góðar konur komið að þessu með mér frá upphafi
eins og Helga Jónsdóttir bæjarstýra í Fjarðarbyggð, Hjördís Hákon-
ardóttir hæstaréttardómari, Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður,
Inga Jóna Þórðardóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Ráðstefnuna
hafa sótt konur sem hafa hæfileika til að miðla og gefa af sér og aðrar
hlusta af ákafa og saman lyfta þær hópnum. Ráðstefnan er heldur
ekki bundin við neinn einn pólitískan pól, starfsgrein eða stefnu.“
„2006 varð sprenging, því þá komu 400 konur, sem gerði þetta að
stærstu ráðstefnu atvinnulífsins, segir Herdís. Germaine Greer var þá
aðalfyrirlesari en hún varð heimsfræg fyrir bók sína Kvengeldingurinn.
Dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor á Bifröst. Fjórða ráðstefnan að
baki og hafa þær aldrei verið eins vinsælar.
„lykillinn að árangri liggur þó
ekki hjá körlum, hann liggur hjá
okkur sjálfum. Framtíðin er í
okkar höndum! Það kemur enginn
og sækir okkur, eða býður okkur
eitt né neitt. við náum eingöngu
árangri með samstöðu.“