Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 191

Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 191
fólk F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 191 Bjarni Hrafn Ingólfsson: „Draumurinn er að komast með fjölskyld- una til Barbados í haust, sem er yndisleg eyja og ógleymanlegt er að heimsækja.“ heimsferðir er stærsta ferðaskrifstofa landsins og er starfsemin fjölbreytt. Auk þess sem fyrirtækið býður upp á fjölbreytta ferðamöguleika þar sem meðal annars er boðið upp á borgarferðir, sólar- landaferðir, gönguferðir, siglingar og golfferðir þá eru ýmsar sérferðir í boði þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Bjarni Hrafn Ingólfsson er markaðs- stjóri Heimsferða: „Þessa dagana er allt á fullu við að undirbúa vetrarprógramið sem er að fara í sölu. Jafnframt þarf auðvitað að fylgja eftir sölu á öðrum ferðum, bæði sumar og haust. Það er í ansi mörg horn að líta í markaðssetningunni á þessum tíma, eins og reyndar er orðið meira og minna allan ársins hring, þar sem fyrirtækið hefur vaxið hratt á liðnum árum. Farþegafjöld- inn hjá Heimsferðum í fyrra fór vel yfir 50.000 og fjöldi áfangastaða er vel á þriðja tuginn.“ Bjarni er uppalinn í Kópavoginum og býr þar ásamt eiginkonu sinni, Ingu Þórisdóttur viðskiptafræðingi og þjónustustjóra einstakl- ingsviðskipta hjá SPRON við Ármúla, og börnum þeirra. „Við erum tiltölulega nýflutt í eldra hús sem við höfum unnið að veru- legum endurbótum á í Hlégerðinu í vesturbæ Kópavogs. Þar er frábært að vera; hverfið er mjög gróið og friðsælt og vel staðsett á höf- uðborgarsvæðinu. Við hjónin gerum mikið af því að ganga og búum að því að stutt er niður að sjó þar sem við búum. Það eru hrein forréttindi að eiga þess kost að geta gengið meðfram sjónum, virt fyrir sér fuglalífið og fundið sjávarlykt- ina. Eins er ég alltaf að reyna að leggja meiri stund á golfið en það gengur svona og svona. Framfarirnar eru líka í takt við ástundunina þessa dagana – frekar á hraða snigilsins. Það fylgir því að þegar fjölskyldan stækkar verður minni tími til annars og með lítinn eins árs snáða situr golfið aðeins á hakanum. Það stendur til að fara í sumarfrí til útlanda síðar í sumar og væntanlega verður annaðhvort Rhodos eða Mallorca fyrir val- inu. Draumurinn er síðan að komast með fjölskylduna til Barbados í haust, sem er ynd- isleg eyja og ógleymanlegt er að heimsækja. Í fyrra fórum við þrjár fjölskyldur saman til Ítalíu í tvær vikur, alls 17 manns. Fyrri vikuna vorum við í fallegum bæ sem heitir Caorle og er ekki langt frá Feneyjum og stutt frá Bibione og Lignano, sem margir Íslend- ingar þekkja. Síðari vikuna vorum við síðan í Toscana á yndislegum stað í ekta Toscana sveitasælu. Alveg frábært sumarfrí.“ markaðsstjóri Heimsferða BJarni Hrafn ingólfsson nafn: Bjarni Hrafn Ingólfsson. fæðingarstaður: reykjavík, 5. júní 1963. foreldrar: Ingólfur Ólafsson og Erla Bjarnadóttir. maki: Inga Þórisdóttir. Börn: Yngvi Gunnar, 23 ára, Erla Katrín, 13 ára, Jóhann Ingi, 11 ára, og Baldur Hrafn, eins árs. menntun: rekstrarfræðingur frá Samvinnuháskólanum á Bifröst 1991 og MS í viðskiptafræðum frá Viðskiptaháskólanum í árósum í danmörku 1997.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.