Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 189
Lífsstíll
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 189
Hildur Petersen er tiltölulega nýkomin frá Las
Vegas en hún er í stjórnum Auðar Capital,
Kaffitárs, Pfaff, Barnaheilla og SES-sjóðs SPRON.
Tilgangurinn með ferðinni var að fara á LOVE-
sýningu Cirque du Soleil þar sem lög Bítlanna
voru í aðalhlutverki. „Þetta er hágæða loftfimleika-
flokkur sem hefur vaxið og dafnað með árunum.
Sýningin var mjög sérstök en unnið var úr textum
Bítlalaganna og það var eins og Bítlarnir væru á
staðnum en skuggum af þeim var varpað upp á
tjöld. Þá voru gömul samtöl hljómsveitarmeðlim-
anna úr stúdíói notuð.“
Hildur fór einnig á sýningu með Cher þar sem
hún flutti mörg lög af sínum langa ferli. Um mikla
skrautbúningasýningu var að ræða að sögn Hildar.
Þá var hin mikla Hoover Dam stífla
skoðuð en með henni var lagður grunnur
að uppbyggingu Las Vegas því gríðarlega
orku þurfti til að lýsa upp öll ljósaskiltin
í borginni.
„Borgin er eins og Disneyland fyrir
fullorðna,“ segir Hildur. „Þetta er glæsi-
legur gerviheimur.“
Mörg brúðhjónin gistu á sama hóteli
og Hildur og þar er meira að segja kap-
ella en eins og flestir vita þykir sport að
gifta sig í borginni.
Hildur Petersen. „Sýningin var mjög sérstök en
unnið var úr textum Bítlalaganna og það var eins og
Bítlarnir væru á staðnum en skuggum af þeim var
varpað upp á tjöld.“
„Borgin er eins og Disneyland fyrir fullorðna,“ segir Hildur.
„Eflaust hefur það ekki farið fram hjá neinum að efnahagsaðstæður á Íslandi
hafa ekki verið verri í 18 ár og áhrifanna gætir alls staðar í þjóðfélaginu.
Fjölmiðlaumfjöllun einkennist af fréttum af veikri stöðu krónunnar, uppsögnum
og almennri bölsýni og ekki er laust við að ofsahræðsla hafi gripið um sig.
Utanlandsferðum er aflýst, innheimtubréfin hrúgast inn um bréfalúguna og
sala á geðlyfjum hefur aukist svo um munar.“
Hrafnhildur J. Moestrup, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Empora
auglýsingavara og félagi í FKA. Morgunblaðið, 5. júní.
„Seðlabankinn og fjármálaráðuneyti spá töluverðri lækkun fasteignaverðs.
Seðlabankinn hefur spáð þrjátíu prósenta raunlækkun og á dögunum kom
fram hjá aðalhagfræðingi bankans að það kynni að vera vanmetið.“
Ingimar Karl Helgason. Markaðurinn, 11. júní.
„Grunnvandinn er augljóslega krónan. Hann kom fram um leið og íslenska
krónan varð til og helgast meðal annars af því að við getum ekki selt afurðir
okkar til útlanda í okkar eigin mynt. Vissulega hefur krónan þjónað því hlut-
verki að skapa ákveðinn sveigjanleika í hagkerfinu. Hún hefur stuðlað að því
að halda uppi atvinnustigi og leiðrétta laun. Krónunni hefur hins vegar ekki
tekist að uppfylla hefðbundin hlutverk gjaldmiðla, s.s. að vera gild skiptieining
í viðskiptum, að vera traust mælieining og að geta geymt verðmæti og haldið
kaupmætti sínum gagnvart vöru og þjónustu.“
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
Morgunblaðið, 12. júní.
Frjáls verslun fyrir 32 árum
– Það er eitthvað voðalega bráðsmitandi læknir.
Svo mörg voru þau orð
Las Vegas:
GlæsileGur Gerviheimur