Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
sMásala
Þitt góða ráð eða heilræði í stjórnun?
Vera samkvæmur sjálfum sér og gefa gott for-
dæmi. Ekki spara endurgjöfina og gefa fólkinu
tækifæri til að njóta sín og ná árangri.
Hverjir eru mikilvægustu eiginleikar stjórn-
anda?
Sjálfstraust og heilindi eru mikilvægir eiginleikar,
auk þess sem stjórnandi þarf að vera leiðtoginn
sem tekur fjöldann með sér. Síðast en ekki síst
þarf hann að hafa kímnigáfu, það þarf að vera
gaman í vinnunni.
Ert þú hlynnt því að ganga í ESB og taka upp
evru?
Ég er hlynnt inngöngu í ESB og upptöku evru. Ég
tel það mikilvægt að ríkisstjórn Íslands undirbúi
aðildarviðræður sem fyrst. Í framhaldi af því þarf
að kynna á hlutlausan hátt bæði kosti og galla
inngöngu og ræða aðild á opinberum vettvangi.
Meiri stöðugleiki til framtíðar mun nást með
inngöngu og við það mun meðal annars verðlag
verða í meira samræmi við það sem gengur og
gerist í nágrannalöndum okkar.
Hvað er brýnasta verkefnið þessa stundina
hjá stjórnendum íslenskra fyrirtækja?
Að halda ró sinni, þetta gengur yfir, en á með það
er að gerast þá þarf að halda vel utan um allan
rekstur og finna leið til að hagræða þar sem því
verður við komið.
Áttu von á að fyrirtæki þitt nái markmiðum
sínum á árinu?
Við stefnum að því og vonum að með þeim
aðgerðum sem við höfum sett af stað þá takist
það.
Sex orða ævisagan:
Hvar er næsti bardagi?!
JÓHANNA
WAAGFJÖRÐ
framkvæmda-
stjóri Haga hf
Gott ráð eða heilræði í stjórnun?
Að vera sanngjarn og heiðarlegur stjórnandi, sem fylgir sjálfur
þeim reglum sem hann ætlar öðrum.
Hverjir eru mikilvægustu eiginleikar stjórnanda?
Að nema hjartsláttinn í fyrirtækinu, hafa hæfni til að hlusta á
samstarfsfólk sitt, hvetja það til góðra verka og hrósa þegar við á.
Ertu hlynnt því að ganga í ESB og taka upp evru?
Já, við evrunni. En hún kemur ekki einsömul, svo ég svara eins
og stjórnmálamaður: “Það þarf að skoða málið vel“ enda í mörg
horn að líta.
Hvað er brýnasta verkefnið þessa stundina hjá stjórnendum
íslenskra fyrirtækja?
Að vera einbeittur, með markmiðin á hreinu og missa ekki móð-
inn þó á móti blási. Eða eins og maðurinn minn myndi orða það :
“Halda kúlinu“.
Áttu von á að fyrirtæki þitt nái markmiðum sínum á árinu?
Það er sjaldan mikilvægara en á samdráttartímum að nota öll
trompin á hendi til að ná árangri. Sem framkvæmdastjóri Next
og Noa Noa get ég vel við unað, því við höfum aukið veltu okkar
á þessu ári.
Sex orða ævisagan:
Rússíbanaferð! Góður lífsförunautur, gefandi börn, skemmtileg
vinna.
RAGNHILDUR ANNA JÓNSDÓTTIR
framkvæmdastjóri Next og Noa Noa