Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 71
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 71
Byrjarðu á því að gefa gula spjaldið eins gert er í boltanum?
Ragnhildur: Nei, yfirleitt ekki.
Það er bara strax rauða spjaldið?
Ragnhildur: Já.
Auður: Ég er sammála, en auðvitað þarf alltaf að meta þessi mál út
frá aðstæðum.
Niðurstaðan er sú að ganga eigi hreint til verks?
Auður: Já, og um leið þarf að benda fólki á að möguleikar gefist víða
og vekja athygli á styrkleika starfsmannsins, sem geti nýst betur annars
staðar. Hann gæti verið frábær í öðru starfi eða í öðru umhverfi.
Áslaug: Margir stjórnendur tala um að þetta sé það erfiðasta sem
þeir gera.
Kristín: Það er erfitt að standa í uppsögnum en oft og tíðum, þegar
upp er staðið, er það best fyrir fyrirtækið og starfsmanninn sjálfan.
Hann kemst hugsanlega í annað starf þar sem hæfileikar hans nýtast
betur og fær ný tækifæri sem henta honum betur.
Áslaug: Það má kannski bæta því við, fyrst við erum m.a. að tala
um niðursveiflu, að ástandið hefur verið mjög óvenjulegt undanfarin
ár. Bankarnir hafa verið eins og ryksugur, sogað til sín sérfræðinga
svo sem verkfræðinga, stærðfræðinga og viðskiptafræðinga. Þetta
hefur gert öðrum fyrirtækjum, viðskiptavinum bankanna, erfiðara
um vik því að fyrirtækin byggjast á mannauðnum. Bankarnir settu
launakerfið ennfremur í uppnám sem var í raun mjög óábyrgt á svo
litlum markaði. Núna er að losna um þetta í bankakerfinu; verk-
fræðistofur og aðrir eru að ráða fólk. Í niðursveiflu eru nefnilega alltaf
tækifæri. Nú er hagstætt að ráða mjög hæfa einstaklinga, vera með
góðan áttavita og safna liði fyrir næstu sókn.
Hvort teljið þið meira hvetjandi fyrir starfsfólk að fá klapp á
bakið og hrós eða kaupauka og bónusgreiðslur?
Ingunn: Ég myndi halda að það fari talsvert eftir því hver starfs-
greinin er.
Ingunn, þú ert hjúkrunarfræðingur og í heilbrigðisgeiranum
er ekki hægt að bjóða kauphækkanir. Hvernig á að ná í fólk?
Ingunn: Hvers vegna er ekki hægt að hafa kaupauka þar? Á fólkið að
gefa vinnu sína? Gildismatið er þannig í þjóðfélaginu að þeir sem passa
peninga eigi að fá vel greitt, en þeir sem hafa umsjón með mannslífum,
börnunum okkar og kennslumálum, eigi ekki skilið að fá góð laun. Það
væri hægt að borga þessu fólki góð laun ef vilji væri fyrir hendi.
Kristín: Mér finnst þetta mjög áhugaverð spurning. En ég spyr á
móti: Er bara hægt að mæla árangur í peningalegri arðsemi? Mér
finnst árangur miklu víðara hugtak.
Ingunn: Á Akureyri fyrir u.þ.b. 15 árum var boðið upp á auka-
greiðslu í hverjum mánuði, sem var töluverð upphæð á þeim tíma,
fyrir það eitt að ráða sig þangað í fulla vinnu. Það gafst mjög vel og
bætti verulega umönnunina á sjúkrahúsinu.
ÁSLAUG PÁLSDÓTTIR:
Við erum ekki eyland í
viðskiptalegri hugsun.
Fyrirtækin eru í rekstri og
líta á allan heiminn sem
markað, hvort sem um
er að ræða Norðurlöndin,
Evrópu eða aðra skilgreinda
markaði. Mörg af stærri
fyrirtækjunum sem eru í
Kauphöllinni eru með aðeins
litla prósentu af starfsemi
sinni á Íslandi.