Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 167
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 167
s t j ó r n u n a r b æ k u r
auðveldara með að tala til kvenna í sínum rekstri. Mikilvægi þess er
ótvírætt þegar litið er til þess að í Bandaríkjunum kaupa konur 83%
af allri vöru og þjónustu, að þær bera ábyrgð á 91% kaupa til heim-
ilisins, 88% innkaupa í smásölu, eiga 89% bankareikninga og eru
ábyrgar fyrir meira en 50% af allri greiðslukortanotkun, netnotkun
og ferðakostnaði. Það er því einn lykla velgengni kvenna í rekstri
að geta talað við þennan gríðarlega öfluga hóp neytenda sem aðrar
konur eru.
Annað einkenni kvenna sem hugsanlega skýrir árangur þeirra er
að þær virðast hafa skýrari sýn, „fókus“, en karlar á ýmsum sviðum.
Því hefur oft verið ruglað saman við skort á metnaði því gjarnan
þykja þær láta tækifæri fram hjá sér fara í rekstrinum.
Á hinn bóginn hafa þær skýrari sýn á það sem þær ætla sér og
láta ekki önnur tækifæri afvegaleiða sig. Þær halda sig við það sem
lagt er upp með í upphafi og ná því meiri árangri. Þetta tengist öðru
einkenni kvenna sem höfundur tilgreinir sem lykil að árangri, þ.e. að
gildi þeirra eru sterk og þær standa og falla með sínum gildum.
Gildi hafa mikil áhrif á styrkleika vörumerkja, staðsetningu á
markaði og hjálpa stjórnendum að taka samræmdar ákvarðanir.
Gildi eru í raun það sem starfsmennirnir vinna fyrir; það sem nær
út fyrir launaumslagið og gefur vinnunni þýðingu og tilgang. Gildin
eru það sem skapar stöðugleika sem er gríðarlega mikilvægt í hverf-
ulu viðskiptaumhverfi nútímans.
Fyrir hverja er bókin?
Bókin er fyrir stjórnendur, karla og konur sem vilja ná meiri árangri,
hafa hug á að fara út í eigin rekstur og vilja hafa réttu tækin í hönd-
unum til að ná árangri fljótt og örugglega. Hún er fyrir stjórnendur
sem vilja halda í kraftmiklar konur innan sinna fyrirtækja.
Í bókinni eru ábendingar um hvað þurfi að vera til staðar innan fyrir-
tækja til að konur þrífist innan þeirra. Það er ljóst að konur úti um
allan heim eru að sækja í sig veðrið í rekstri. Ísland er þar engin undan-
tekning og sýnir fjölgun kvenna í Félagi kvenna í atvinnurekstri
það svo ekki verður um villst. Fyrirtæki í dag hafa ekki ráð á að líta
framhjá þörfum kvenna því með því tapast gríðarlegur slagkraftur
sem á eftir að verða enn mikilvægari á komandi árum.
kvenfrumkvöðlum er að fjölga. Fyrir því
eru nokkrar ástæður; menntunarstig
kvenna er að hækka; frumkvöðlum
almennt er að fjölga; það er auðveldara
að stofna fyrirtæki; síðast en ekki síst
vilja konur sjálfstæði og frelsi sem
þær fá frekar í eigin rekstri en sem
starfsmenn fyrirtækja.
Einkenni kvenfrumkvöðla í rekstri
Bókin How she does it – How Women Entrepreneurs Are
Changing the Rules of Business, er byggð á sögum af
konum í rekstri. Í inngangi safnar höfundur hins vegar
saman nokkrum áhugaverðum tölulegum staðreyndum um
konur í rekstri í Bandaríkjunum. Tölurnar og staðreyndirnar
tala sínu máli:
40%1. allra félaga í einkaeigu eru í eign eða undir stjórn
kvenna, alls 10,4 milljónir fyrirtækja.
Milli2. 1997 og 2004 fjölgaði einkafyrirtækjum í eigu
kvenna tvöfalt hraðar en öðrum fyrirtækjum.
Fyrirtæki3. í eigu kvenna skapa störf tvisvar sinnum
hraðar en önnur fyrirtæki og hafa nú fleiri á launaskrá
en öll Fortune 500 fyrirtækin samanlögð.
Hagnaður4. fyrirtækja í eigu kvenna eykst hraðar en allra
annarra fyrirtækja.
Fyrirtæki5. í eigu kvenna eru lífseigari en önnur fyrirtæki.
Um 4206. ný fyrirtæki í eigu kvenna eru stofnuð daglega
í Bandaríkjunum.
Um 4%7. fyrirtækja í eigu kvenna velta meira en 1
milljón dollara. 6% allra fyrirtækja í Bandaríkjunum
velta meira en 1 milljón dollara.
Fyrirtæki8. í eigu kvenna með meira en milljón dollara
veltu og fleiri en 100 starfsmenn vaxa tvöfalt hraðar
en öll önnur fyrirtæki.
Við minnum9. svo á gamla góða spakmælið sem nýtist
margri konunni í rekstri: Neyðin kennir naktri konu að
spinna.