Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 170
170 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
a u ð u G u s t u k o n u r b r e t l a n d s
hærri en hann og vildi ekkert með hann hafa. Hann gafst
ekki upp, heldur ekki þó hún talaði enga ensku. Hjónin búa
í London og víðar. Mestur hluti þeirra 2,4 milljarða punda
sem hann er talinn eiga, er í sjóði á Jersey, skráðum á hennar
nafn. Þau hafa undanfarin ár gefið 50 milljónir punda í
góðgerðastarfsemi og Slavica tekur þátt í því en starfar ekki
í fyrirtækjum eiginmannsins.
Hin 72 ára barónessa Howard de Walden heitir fullu
nafni Mary Hazel Caridwen Czernin og er tíundi ættlið-
urinn í samnefndri aðalsætt. Hún er elst fjögurra systra og
höfuð fjölskyldunnar. Eins og oft er með gamlan enskan
auð byggist auður barónessunnar á fasteignum í London.
Fjölskyldan á til dæmis 92 ekrur lands í kringum læknagöt-
una Harleystræti en nafnið er varla nefnt í fjölmiðlum.
Önnur öldruð hefðarkona, sú sjöunda á auðkvennalist-
anum, er lafði Elizabeth Grantchester. Lafðin er dóttir
Sir John Moores sem stofnaði veðmangarafyrirtæki fyrir
tæpri öld og auðgaðist vel á því. Lafðin giftist svo baróni
sem var aðeins annar í röðinni svo titill lafðinnar er nær
ekki jafnlangt aftur og saga Howard de Walden. Eignirnar
á hún með yngri bróður sínum og auk veðstarfsemi liggur
auðurinn í verslunarfyrirtækjum.
dugnaður, elja og harka
Hourieh Peramaa er 75 ára og ættuð frá Kazakstan. Þegar
hún var sautján ára bjó hún í írönskum flóttamannabúðum
og átti hvorki til hnífs né skeiðar, eða svo segir nánast eina
sagan sem af henni fer. Þar hitti hún læknanema af auð-
ugum ættum. Peramaa hefur á undanförnum áratugum
keypt og selt eignir bæði í Evrópu og Asíu og byggt upp
eignasafn sem er metið á milljarð punda.
Það er ekki mikið vitað um þessa smávöxnu konu sem
í vetur hélt góðgerðasamkomu þar sem Mikhail Gorbaséf,
fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, var heiðursgestur. Hún
komst í fréttir í ársbyrjun þegar hún keypti eina dýrustu
húseign höfuðborgarinnar í Norður-London, í sömu götu
og stálkóngurinn Lakshmi Mittal, auðugasti maður Bret-
lands, býr, auk ýmissa Sádí-Araba. Verðið var 50 milljónir
punda fyrir hús í grískum stíl sem tyrkneskur auðmaður lét
byggja fyrir sex árum.
Aldrei hefur verið búið í húsinu þó það standi fullbúið og
nú ætlar Peramaa að taka á málum með íslenskum stíl, láta
rífa allt innan úr húsinu og byrja upp á nýtt. Ítalskur arki-
tekt sér um þessar framkvæmdir sem fara hátt í að tvöfalda
verðið. Inngangur heimilisfólksins verður falinn neðan-
jarðar og í anda James Bond verður byggður þyrlupallur
sem verður hægt að láta hverfa niður í grasið.
Þó fyrirtæki Ruth Parasol séu eignuð bæði henni og eigin-
manni hennar, Russel de Leon, er hún driffjöðrin þar og
var komin vel áleiðis í auðsöfnun þegar þau giftust 2003.
Hún er 41 árs bandarískur lögfræðingur, dóttir pólsks
gyðings sem lifði af útrýmingarbúðir nasista áður en hann
flutti til Bandaríkjanna. Hún hefur gert út á tvær mannlegar
hvatir, kynhvöt og spilafíkn, verið með í fyrirtækjum sem
tengjast símaklámþjónustu og síðan spilavítum, nú síðast
á netinu.
Þegar bandarísk lög um spilavíti breyttust tapaði Parasol
miklu en nú er fyrirtæki hennar skráð í Bretlandi. Hjónin
búa í skattaparadísinni Gíbraltar en fjölmiðlar velta því fyrir
sér hvort hún megi fara til Bandaríkjanna því hugsanlega
vofi yfir henni málaferli. Parasol sést aldrei í fjölmiðlum en
þeir sem hafa hitt hana segja hana hægláta og stórglæsilega
án þess að neitt bendi til þess í hvaða geirum hún starfi.
Ann Gloag er oft í fréttum, síðast nú í vetur þegar
fyrrum maður hennar lést í umferðarslysi. Þau hjón keyptu
rútu og lokkuðu að viðskiptavini með ókeypis samlokum
sem móðir hennar smurði. Síðan slóst bróðir Ann í hópinn,
en hann er endurskoðandi. Hjónabandið fór út um þúfur
og eiginmaðurinn setti upp eigið rútufyrirtæki. Þó það væri
minna í sniðum en rekstur fyrrum eiginkonu gerði hún allt
sem hún gat til að klekkja á honum. Einkasonur þeirra fyrir-
fór sér 28 ára að aldri, faðirinn fékk ekki að sitja fremst með
fjölskyldunni við jarðarförina og var ekki nefndur á nafn við
það tækifæri.
Gloag er 65 ára og situr enn í stjórn fyrirtækisins en
sinnir ekki lengur daglegum rekstri. Hún á tvo kastala,
hefur staðið í málaferlum við bæjarfélögin þar því hún vill
ekki neinn umgang um eignir sínar þó það sé annars rík
hefð fyrir því í Englandi að göngufólk megi nota gamla
göngustíga á einkalandareignum. Hún hefur líka staðið í
málaferlum við fólk sem hefur leigt á landareignum hennar
og er greinilega frekar stríð í skapi, þó hún hafi fengið orðu
fyrir góðgerðastarfsemi.
stefnir í fleiri auðkonur
Rannsóknir bæði hér og víðar sýna að fyrirtæki þar sem
konur eru í stjórn ganga betur. Skýringin er líklega sú að
þá er tekið tillit til fleiri þátta en ella. Bresk fyrirtæki hafa
verið sein að átta sig á þessum einföldum staðreyndum en
það er ekki öll von úti enn og hvort sem breskt viðskiptalíf
er fjandsamlegt konum eða ekki þá eru þær að sækja í sig
veðrið.
Breskar konur sækja líka stíft í nám. Rannsóknarstofnun
hér, CEBR, hefur spáð því að árið 2020 verði 1,7 milljónir
Breta milljónamæringar í pundum talið og að 53 prósent
þeirra verði konur. Þó síðasta niðursveifla valdi því kannski
að milljónamæringar verði ekki alveg svona margir er allt
sem bendir til að konur nái sér vel á strik í þeim hópi.