Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Side 24
24
Amalía Björnsdóttir, Baldur Kristjánsson og Börkur Hansen
stofnanamenningu íslenskra grunnskóla?
Eru þær mismunandi eftir skólum? Ein-
kennist gildismat kennara og stjórnenda
af áherslu á markvissa forystu og þróun
skólastarfsins? Hversu verkefna- eða sam-
keppnismiðuð er stofnanamenningin?
Hver eru tengsl þessara þátta við námsár-
angur nemenda á samræmdum prófum?
Aðferð
Þátttakendur
Haustið 2007 voru spurningalistar lagðir
fyrir alla kennara og deildarstjóra í átta
grunnskólum. Valdir voru heildstæðir
skólar, þ.e. með 1.–10. bekk, sem höfðu
starfað í að minnsta kosti tíu ár og mátti
líta á sem fulltrúa skóla á ólíkum svæðum.
Skólar voru valdir með hentugleikaúrtaki.
Tveir skólanna eru í Reykjavík, tveir á höf-
uðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur, tveir í
stærri kaupstöðum, einn í sjávarþorpi og
einn í sveitahéraði. Í 1. töflu eru upplýs-
ingar um fjölda þátttakenda eftir skólum
og starfsaldur, bæði heildarstarfsaldur og
starfsaldur í viðkomandi skóla. Konur sem
svöruðu voru 194 (81%) og karlar 41 (17%).
Tveir einstaklingar svöruðu ekki spurn-
ingu um kyn.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands1
voru 318 kennarar og deildarstjórar við
störf í skólunum átta og svöruðu 237 eða
75% (sjá 1. töflu). Svarhlutfall í einstökum
skólum var frá 57–98%. Spurningalistar
voru lagðir fyrir á kennarafundi og lík-
lega má skýra mismunandi svarhlutfall
með mætingu á þá fundi sem m.a. ræðst
af starfshlutfalli og aðstæðum á hverjum
stað. Meðalstarfsaldur þátttakenda í eigin
skóla var 8,1 ár en 13,3 ef spurt var um
starfsaldur á grunnskólastigi.
Mælitæki – framkvæmd
Spurningalistar sem voru lagðir fyrir kenn-
ara voru samdir af rannsakendum (sjá
nánar Amalíu Björnsdóttur, Baldur Krist-
jánsson og Börk Hansen, 2008). Spurninga-
listarnir voru í upphafi forprófaðir í einum
skóla. Unnið var úr niðurstöðum þess
1 Upplýsingar fengnar hjá skóladeild Hagstofunnar.
1. tafla Fjöldi þátttakenda, starfsaldur og svarhlutfall eftir skólum.
Skóli Fjöldi kennara/
deildarstjóra
Fjöldi þátttakenda Meðalstarfsaldur í
þessum skóla
Svarhlutfall
A 47 27 10,6 57%
B 38 27 8,1 71%
C 38 24 7,5 77%
D 32 30 6,1 94%
E 26 19 11,7 73%
F 45 35 4,8 78%
G 40 24 9,3 60%
H 52 51 9 98%
Allir 318 237 8,1 75%