Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Blaðsíða 71
71
Hönnun skólabygginga í deiglu nýrra kennsluhátta
hæðum. Miðrými á neðri hæð myndar
opinn sal til fjölnota og hann má opna
inn í aðliggjandi tónmenntastofu. Opið er
upp í anddyri og gang á annarri hæð og
þaðan sér niður í salinn. Almenn kennslu-
rými eru eins og áður kom fram aflangir
klasar með þremur stofum hver, þrír
klasar. Stjórnun, kennarastofa og bókasafn
mynda sérstakan klasa á efri hæð og inn
af tónmenntastofu á neðri hæð eru list- og
verkgreinastofur í einu knippi, afmarkað-
ar eftir greinum en bjóða upp á visst flæði
á milli stofa og sameiginlegt fjölnotarými
fyrir nokkra nemendur. Stofa helguð nátt-
úrufræði býður upp á góð tengsl við nátt-
úrulegt umhverfi en er ekki í sérstökum
tengslum við önnur rými og ein stök stofa
var á byggingartíma lögð undir tölvur.
Íþróttasalur og sundlaug eru í gömlu sam-
komuhúsi skammt undan.
Í skóla 5 er þríhyrndur salur eða fjöl-
nota gangsvæði í miðju skólans með
langar tveggja hæða húseiningar og svalir
á báðar hendur. Fyrir breiðari endanum
liggur svo íþróttasalur og lokar rýminu
með fellivegg til þeirrar áttar. Brú yfir
miðjan salinn bindur saman einingarnar
tvær á efri hæð. Undir brúnni er tjald svo
að skipta má salnum í tvennt til ýmissa
nota. Öll lykilsvæði skólans hafa svo til
beinan aðgang að þessu miðsvæði. Leik-
skóli innan skólaveggja er í sérstakri álmu
og tengist miðsvæðinu í annan endann.
Almenn kennslurými og rúmgóð smiðja
fyrir list- og verkgreinar eru að hluta
greind frá salnum með steyptum veggjum
en að hluta með gleri eða tjöldum til að ýta
undir flæði, gagnsæi og yfirsýn.
Veggir loka af stofur í skóla 1 en hægt
er að líta inn um litla glugga í hurð eða
við dyr. Í skóla 4 virðist fremur lítil sýn af
gangsvæðum inn í stofur en innangengt
er á milli stofa innan sama klasa eins og
áður kom fram. Í skólum 2, 3 og 5 er yfir-
leitt hægt að sjá inn í kennslurýmin um
breiðar dyr, stóra glugga eða glerþil þó að
stundum byrgi tjöld eða upphengt efni þá
sýn.
Félagsleg sýn, öflug samskipti og teymisvinna
Allir skólarnir í úrtaki okkar eru hannaðir
með það fyrir augum að ýta undir sam-
vinnu og teymisvinnu kennara sem sinna
nemendum í sama aldurshópi eða á til-
teknu aldursbili. Í skóla 1 er lögð til lítil
kennarastofa í hverjum aldursklasa eða
húsi. Kennarar yngstu nemendanna nota
þessa stofu alla jafna í hléum svo að nem-
endur eiga þar greiðan aðgang að þeim ef
eitthvað kemur upp á. Kennarar á miðstigi
og unglingastigi nota líka sínar kennara-
stofur en sækja meira í miðlæga kennara-
stofu í stjórnunarálmu sem einnig stendur
öllum til boða. Starfsmenn í skóla 2 vinna
mikið í teymum og nýta mest kennaraher-
bergi á sínu kennslusvæði en sækja líka
litla kaffistofu í stjórnunarálmu. Í skóla 3
liggja lítil vinnuherbergi almennra kenn-
ara á milli kennslurýma og sér úr þeim inn
í önnur rými. Þar er einnig rúmgóð kenn-
arastofa. Í skóla 4 mynda stjórnun, kenn-
arastofa og bókasafn sérstakan klasa en
skammt er til annarra svæða enda skólinn
lítill. Í skóla 5 er byggt á mikilli teymis-
vinnu innan aldurshópa og þvert á greinar
en ekki liggur alveg ljóst fyrir hvernig
vinnu kennara verður best fyrir komið,
húsið er enn í byggingu og stjórnunar-