Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Page 129
129
Virk námskrá í íslensku í 6. og 7. bekk grunnskóla í ljósi samræmda íslenskuprófsins í 7. bekk
n Faglegt sjálfstraust kennara: Sannfæring
kennara um eigin möguleika til að hafa
áhrif á nám og námsárangur nemenda,
bæði sem einstaklinga (e. self-efficacy
beliefs) og sem hóps innan skóla eða
deildar (e. collective-efficacy beliefs)
(Goddard, Hoy og Hoy, 2004).
n Mismunandi snið fagmennsku kennara:
Mismunandi hugmyndir kennara um
eðli fagmennsku og hlutverk sitt sem
fagmanna (Hargreaves, 2000; Trausti
Þorsteinsson, 2001).
Þá eru ótalin áhrif af félagslegri stöðu
nemenda, meintum og raunverulegum
kröfum frá samfélagi, framhaldsskólum
og atvinnulífi og dulinni námskrá sem
mótast af menningu skólans, væntingum
til nemenda, samskiptahefðum, vali á
námsefni og stöðu kynja og kynþátta.
Virk námskrá
Við endurmótun áformuðu námskrárinn-
ar verður til ný námskrá; hin virka nám-
skrá sem endurspeglar ákvarðanir kenn-
ara um inntak og tilhögun kennslunnar.
Virka námskráin felur í sér tvo megin-
þætti, kennslu og nám. Kennslan felur í
sér þá þætti sem kennarar geta haft stjórn
á með ákvörðunum sínum og athöfnum.
Þar er einkum um að ræða mismunandi
flokka markmiða og inntaks náms (Bloom,
Engelhart, Furst, Hill og Krathwohl, 1956),
kennsluaðferðir, tilhögun námsmats
(Black og Wiliam, 1998) og námsaðlögun
(Tomlinson og Eidson, 2003). Nám bygg-
ist vitaskuld á kennslunni en felur enn
fremur í sér innri forsendur nemenda sem
kennarar hafa enga beina stjórn á en verða
engu að síður að setja sig inn í til að geta
lagað kennslutilhögun sína að þeim. Þarna
er meðal annars um að ræða forsendur
nemenda til náms, námsáhuga, námshætti
og tilfinningar (Tomlinson og Eidson,
2003). Virka námskráin er þó ekki einsleitt
fyrirbæri heldur er nær að tala um virkar
námskrár sem eru ólíkar frá einum skóla
til annars og jafnvel frá einni kennslustofu
til annarrar innan sama skóla (Meyvant
Þórólfsson, 2009).
Áunnin námskrá
Áunna námskráin mótast beinlínis af þeirri
virku. Hún endurspeglar raunverulega
námsreynslu nemenda og það sem þeir
bera úr býtum af viðfangsefnum sínum en
einnig það sem Eisner (1994, bls. 97) kallar
námskrána sem ekki er til eða núll-nám-
skrá. Núll-námskráin er það sem ekki er
kennt, annaðhvort samkvæmt meðvitaðri
ákvörðun, vegna dulinnar námskrár eða
afturvirkra áhrifa frá prófum. Uppskera
nemenda er að sjálfsögðu margs konar.
Hún er bæði tengd þekkingu og færni í
námsgreinum, djúpnámi, hugsmíðum,
rökhugsun og námsvitund (e. metacogni-
tion) og snertir þannig forsendur nem-
enda til frekara náms (McGregor, 2007).
Hún er einnig tilfinningaleg, uppeldisleg
og félagsleg. Þannig eru ekki að öllu leyti
skörp skil milli virku námskrárinnar og
þeirrar áunnu. Á sumt má líta jafnt sem
forsendur náms og ávinning þess; til
dæmis námsáhuga, námsvitund og sjálfs-
traust sem og það að nemendur læri að
umgangast þekkingu, afla sér þekkingar
og viðhalda henni.