Peningamál - 01.07.2008, Side 18

Peningamál - 01.07.2008, Side 18
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 8 • 2 18 unnar verði meira næstu misserin en áður var búist við. Samkvæmt könnun á spám sérfræðinga á fjármálamarkaði má sjá að þeir gera nú ráð fyrir að stýrivextir verði ívið hærri á þessu ári en þeir gerðu áður ráð fyrir, en verði svipaðir á næstu tveimur árum (sjá viðauka 2). Ávöxtunarkrafa á tveimur styttri verðtryggðu íbúðabréfunum hefur hækkað það sem af er júní, sem líklega má að einhverju leyti rekja til þess að fjárfestar geri nú ráð fyrir að stærstur hluti lækk- unar gengisins í marsmánuði sé nú þegar kominn fram í verðlagi. Ávöxtunarkrafa tveggja lengri flokka þessara bréfa hefur aftur á móti haldist lægri. Mikil óvissa hefur verið um framtíð Íbúðalánasjóðs og hefur það eflaust haft áhrif á eftirspurn lífeyrissjóða, stærstu eig- enda þessara flokka, sökum óvissu um framboð langra verðtryggðra skuldabréfa með ríkisábyrgð. Í kjölfar stjórnvaldsaðgerða sem til- kynntar hafa verið til að örva fasteigna- og fjármálamarkaðinn er óvíst hvernig aðgerðir ríkisstjórnarinnar samrýmast áformum um breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs.1 Ávöxtunarkrafa verðtryggðra íbúðabréfa hækkaði í kjölfar tilkynningarinnar en á meðan upplýsingar um nánari útfærslu þessara aðgerða liggja ekki fyrir ríkir óvissa um framhaldið. Þessi óvissa er slæm, ekki síst fyrir framkvæmd peningastefnunnar, en miðlun hennar á mikið undir því komið að áhrif stýrivaxta eigi greiða leið út í lengri enda verðtryggða vaxtarófsins. Gengi krónunnar hefur haldist lágt og óstöðugt Innlendir vextir á gjaldeyrisskiptamarkaði eru enn lágir og vaxta munur á stystu samningunum lítill sem enginn. Meðan þetta ástand varir er erfitt fyrir útgefendur jöklabréfa að verja sig fyrir gjaldeyris áhættu og slæmar horfur eru á að hægt verði að velta áfram þeim bréfum sem gefin hafa verið út, sérstaklega þar sem lítið framboð er á tryggum skuldabréfum. Þetta ástand skapar þrýsting á gengi krónunnar og skýrir líklega að mestu leyti fall krónunnar í mars og lágt og sveiflu- kennt gengi hennar síðan. Viðbrögð Seðlabankans við þessu ástandi hafa verið af tvennum toga, annars vegar aukin útgáfa innstæðubréfa, sem gerð hafa verið aðgengileg erlendum fjárfestum, og hins vegar hækkun stýrivaxta. Hvort tveggja virðist hafa liðkað til á gjaldeyrisskiptamarkaði og styrkt krónuna tímabundið. Útgáfa innstæðubréfanna opnaði nýjan farveg fyrir innstreymi fjármagns og stöðutöku með krónunni, en á sama tíma hefur slík útgáfa áhrif á framboð innlends fjármagns. Velta á milli- bankamarkaði hefur dregist saman til muna á undanförnum vikum. Líklega hefur útgáfa þessara bréfa haft áhrif þar á. Aukin eftir spurn erlendra fjárfesta eftir stuttum ríkistryggðum fjáreignum hefur verið mikil og af þróun ávöxtunarkröfu stystu óverðtryggðu ríkisskulda- bréfanna má draga þá ályktun að útgáfa innstæðubréfanna hafi aðeins létt á þeirri eftirspurn en á engan hátt mætt henni að fullu.2 1. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lagt fram athugasemdir varðandi ríkisábyrgð sjóðsins. 2. Sjá nánari umfjöllun um mikilvægi þess að fjármálamarkaðir starfi eðlilega og áhrif mark aðsbresta á gengi krónunnar og miðlun peningastefnunnar í rammagrein III-1. % Mynd III-4 Ávöxtun verðtryggðra langtímaskuldabréfa Daglegar tölur 8. júlí 2004 - 1. júlí 2008 Heimild: Seðlabanki Íslands. HFF150914 HFF150224 HFF150434 HFF150644 3,0 3,5 4,0 4,5 5,0 5,5 6,0 6,5 7,0 7,5 8,0 8,5 20082007200620052004 % Mynd III-5 Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra skuldabréfa Daglegar tölur 3. janúar 2007 - 1. júlí 2008 Heimild: Seðlabanki Íslands. RIKB 08 0613 RIKB 08 1212 RIKB 09 0612 RIKB 10 0317 RIKB 13 0517 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 20082007 Heimildir: Bloomberg, Seðlabanki Íslands. Mynd III-6 Mismunur afleiddra krónuvaxta á skipta- samningum og evrópskra millibankavaxta og gengi krónunnar gagnvart evru Daglegar tölur 1. ágúst 2007 - 1. júlí 2008 3 mánaða vaxtamunur á millibankamarkaði (v. ás) 3 mánaða vaxtamunur á skiptasamningum (v. ás) Gengi krónunnar gagnvart evru (andhverfur h. ás) % -2 0 2 4 6 8 10 12 78 86 94 102 110 118 126 134 20082007 Kr./evra

x

Peningamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.